Innlent

Af­nám virðis­auka­skatts geti skilað björgunar­sveitum fúlgum fjár

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir er nýkjörinn formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir er nýkjörinn formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Landsbjörg

Landsbjörg hefur skorað á stjórnvöld að afnema virðisaukaskattsskyldu björgunarsveita, og telja það geta sparað tugi milljóna á ári hverju. Þá kallar félagið eftir því að brugðist verði við húsnæðisvanda viðbragðsaðila sem allra fyrst.

Nýkjörinn formaður Landsbjargar segir húsnæði Landsbjargar við Skógarhlíð hafa verið til bóta á sínum tíma þegar viðbragðsaðilar sameinuðust þar undir einu þaki. Það sé þó farið að láta á sjá.

„Húsnæðið hefur verið í slæmu ástandi og hefur þurft að fara í alls konar viðgerðir, sem hefur orðið til þess að meðal annars samhæfingarstöðin hefur verið flutt tímabundið og er núna niðri á Laugavegi,“ segir Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, sem var kjörinn formaður Landsbjargar á landsþingi félagsins nú um helgina. 

Um leið og viðbragðsaðilar tvístrist á fleiri staði verði samhæfing og samtal þeirra á milli erfiðara. Árið 2022 var undirritaður samningur um byggingu sameiginlegrar björgunarmiðstöðvar en það verkefni var síðar sett á ís af þáverandi stjórnvöldum.

„Það er bara mikilvægt að stjórnvöld sjái til þess að viðbragðsaðilar komist undir eitt húsnæði sem allra fyrst.“

Bílar undanþegnir en byggingar ekki

Félagið gaf einnig út ályktun þar sem skorað var á stjórnvöld að fella niður virðisaukaskatt vegna starfsemi félagsins og björgunarsveita þess um allt land. Sem stendur eru kaup á björgunarbúnaði, svo sem bílum og fatnaði, undanþegin virðisaukaskatti. Bygging og viðhald húsnæðis er það hins vegar ekki.

„Þetta er stórt hagsmunamál fyrir einingarnar okkar. Við erum með 90 björgunarsveitir hringinn í kringum landið, sem allar þurfa að hafa viðunandi húsnæði.“

Spari þjóðarbúinu umtalsverða fjármuni

Virðisaukaskattur af slíku geti verið þungur baggi þegar um er að ræða björgunarsveitir sem reki sig aðeins á sjálfsaflafé.

Hefurðu einhverja hugmynd um hversu miklu það gæti skilað á ári að fá þessa breytingu í gegn? 

„Ég held að í heildina gæti þetta alveg skilað tugum eða hundruðum milljóna.“

Stöðugt sé unnið að því að ná áheyrn ráðamanna, og Borghildur segir fjármálaráðherra eiga erindi frá félaginu vegna virðisaukaskattsmála.

„Sjálfboðaliðar okkar, þegar við reiknum saman hversu miklum tíma þeir hafa eytt í útköll og æfingar á síðasta ári, þá eru það 625 ársstörf í sjálfboðavinnu. Þannig að það sparar þjóðarbúinu talsvert, myndi ég segja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×