Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) gerir nú ráð fyrir að hagvöxtur verði um 0,5 prósentustigum minni á heimsvísu í ár en hann reiknaði með áður en Bandaríkjastjórn tilkynnti um tolla á flest ríki heims fyrr í þessum mánuði.
Horfurnar í Bandaríkjunum eru enn verri að mati sjóðsins. Hann reiknar nú með 0,9 prósentustigum minni hagvexti vestanhafs á þessu ári en í fyrri spá sinni, 1,8 prósent vexti. Það er heilu prósentustigi minni hagvöxtur en mældist í fyrra.
Á evrusvæðinu gerir AGS ráð fyrir 0,2 stigum minni hagvexti en áður. Hann verði 0,8 prósent á þessu ári og 1,2 prósent á því næsta. Í Kína býst sjóðurinn nú við 0,6 stiga minni hagvexti á þessu ári en áður, um fjórum prósentum.
Þá býst sjóðurinn við að verðbólga hjaðni hægar en hann reiknaði með í skýrslu um stöðu efnahagsmála heimsins í janúar og vísar enn til áhrifa tollanna. Sérstaklega eigi það við um Bandaríkin og önnur þróuð hagkerfi, að því er kemur fram í frétt Reuters.
„Við erum nú á leið inn í nýtt tímabil þar sem verið er að endurstilla hagkerfi heimins sem hefur verið við lýði undanfarin áttatíu ár,“ sagði Pierre-Olivier Gourinchas, yfirhagfræðingur AGS, við fréttamenn í dag.
Þrátt fyrir þetta spáir AGS ekki kreppu í Bandaríkjunum. Líkur á niðursveiflu hefðu þó aukist úr um fjórðungslíkum í rúmlega þriðjungslíkur. Verðbólga þar gæti náð þremur prósentum á þessu ári, prósentustigi meira en sjóðurinn reiknaði með í janúar.
Gourinchas varaði ennfremur við að ef tollastríð Bandaríkjanna við önnur ríki magnaðist enn frekar mætti gera ráð fyrir enn meiri efnahagslegri óvissu og óstöðugleika sem bitnaði á heimshagkerfinu. Nú væri algerlega nauðsynlegt að auka fyrirsjáanleika í heimsviðskiptum sem tollastríðið hefur snúið á haus.