Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. apríl 2025 09:32 Trent Alexander-Arnold fagnar sigurmarki sínu gegn Leicester City. getty/Shaun Botterill Jamie Carragher segir að Trent Alexander-Arnold eigi ekki að vera í byrjunarliði Liverpool ef hann hefur sagt félaginu að hann ætli að fara frá því í sumar.
Samningur Alexander-Arnolds við Liverpool rennur út í sumar. Óvissa ríkir um framtíð enska landsliðsmannsins en hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid. Eftir að hafa verið frá keppni í nokkrar vikur vegna meiðsla kom Alexander-Arnold inn á í leik Liverpool og Leicester City í gær. Hann skoraði sigurmark Rauða hersins á 76. mínútu og fagnaði af innlifun. Eftir leikinn sagði Carragher að Alexander-Arnold ætti ekki að byrja leiki fyrir Liverpool nema hann tjái félaginu að hann ætli að vera áfram hjá því. „Ef Trent hefur ekki gefið stjóranum svar fyrir næsta tímabil ætti hann ekki að byrja leiki,“ sagði Carragher. Hann gaf lítið fyrir ummæli Micahs Richards um að Alexander-Arnold ætti skilið að byrja vegna alls sem hann hefði gert fyrir Liverpool. „Liverpool sem fótboltafélag á ekki að halda kveðjuathöfn fyrir einhvern,“ sagði Carragher. Að hans mati á Conor Bradley að byrja síðustu leiki Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, ef Alexander-Arnold er á förum. Þá sé hægt að sjá hvort Bradley ráði við það að fylla skarð Alexander-Arnolds. Liverpool er með þrettán stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og þarf aðeins einn sigur í viðbót til að verða Englandsmeistari. Ef Arsenal vinnur ekki Crystal Palace á miðvikudaginn er einnig ljóst að Liverpool vinnur titilinn. Næsti leikur Liverpool er gegn Tottenham á Anfield á sunnudaginn kemur.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Haaland sló met Agüero Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira