„Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. apríl 2025 19:41 Paulina Hersler skoraði 32 stig fyrir bikarmeistara Njarðvíkur gegn Keflavík. vísir/ernir Paulina Hersler var stigahæst í liði Njarðvíkur sem vann fimmtán stiga sigur á Keflavík, 90-85, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í dag. „
Það er alltaf gott að byrja á sigri. Við vitum að þetta verður langt einvígi. Það þarf að vinna þrjá leiki. Við erum klárlega ánægð með fyrsta sigurinn en núna þurfum við að einbeita okkur að næsta leik,“ sagði Paulina í samtali við Vísi eftir leik. En hver var lykilinn að sigri Njarðvíkur í dag? „Við leystum pressuna þeirra mjög vel og nýttum okkur veikleika þeirra. Við erum stærri en þær svo við þurfum að fara inn í teig og senda boltann út þegar þær tvöfalda. Ég held að við höfum gert það ágætlega í dag. Við þurfum að halda því áfram og halda áfram að leysa pressuna og hraðaupphlaupin þeirra,“ sagði Paulina. Hún skoraði 32 stig í leiknum og var næststigahæst á vellinum á eftir Jasmine Dickey hjá Keflavík. Paulina kvaðst sátt með sína frammistöðu þótt hún hafi verið hógværðin uppmáluð. „Já, svo lengi sem við vinnum. En eins og ég sagði vildum við fara mikið inn í teig. Við erum með hæðina, við Em [Emilie Hessedal] erum miklu stærri en þær allar og þetta var hluti af leikáætluninni,“ sagði Paulina. Hún hlakkar til leiks tvö í Keflavík á miðvikudaginn. „Einvígið er langt og við vitum þær koma af krafti og ætla að stela sigri. Við þurfum að gefa enn meira í og halda boltanum betur. Við vorum með of marga tapaða bolta og mistök í fyrri hálfleik. Við þurfum að hugsa vel um líkamann og koma huganum á réttan stað,“ sagði Paulina að lokum.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Mest lesið Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Körfubolti Svona var fundur KSÍ þegar Arnar tilkynnti landsliðshópinn Fótbolti Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Enski boltinn Arnar: Aðrir leikmenn framar en Jóhann Fótbolti Orri, Jóhann og Gylfi ekki með en Aron valinn Fótbolti Kaupa einn frægasta leikvang heims til þess að rífa hann Fótbolti Drama í sænska landsliðinu: „Hann hefur svikið liðsfélaga sína“ Fótbolti Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Fótbolti Arftaki Heimis fundinn: „Alltaf áhætta að gera breytingar“ Íslenski boltinn Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Verður sá síðasti í sögunni til að spila í treyju númer sex Jón vísar ummælum Rögnvaldar til föðurhúsanna Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Craig Pedersen heldur áfram með íslenska landsliðið Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana KR vann nýliðaslaginn Meistararnir byrja á góðum sigri Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 64-81 | Reynslan skilaði gestunum sigri „Væri eiginlega kjánalegt að segjast ekki ætla að gera betur“ Ragnar frá Þorlákshöfn í Grindavík „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Al Horford til Golden State Uppgjörið: Stjarnan - Valur 90-89 | Stjarnan náði að halda út og er meistari meistaranna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 83-86 | Njarðvík meistari meistaranna eftir kaflaskiptan leik Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Sjá meira