Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. apríl 2025 20:00 Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar í undanúrslitaleiknum. Getty/Swen Pförtner Melsungen mun leika til úrslita gegn Kiel á morgun í þýsku bikarkeppninni í handbolta. Íslendingaliðin Veszprém og Pick Szeged munu svo síðar mætast í úrslitaleik ungversku bikarkeppninnar í handbolta.
Melsungen tryggði sig áfram í úrslit með 31-27 sigri gegn Balingen/Wetzlar í kvöld. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark og gaf tvær stoðsendingar fyrir Melsungen í leiknum, sem var jafn að fyrri hálfleik loknum. Melsungen brunaði svo fram úr í upphafi seinni hálfleiks og tók mest sjö marka forystu. Balingen/Wetzlar minnkaði muninn undir lokin en komst aldrei nálægt því að jafna. Melsungen mun því leika til úrslita gegn Kiel, sem sló Rhein-Neckar Löwen út með 32-31 sigri eftir æsispennandi framlengdan leik. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun. Melsungen á harma að hefna eftir tap í úrslitaleiknum gegn Magdeburg á síðasta ári. Íslendingalið mætast í bikarúrslitaleik í Ungverjalandi Íslendingaliðin Veszprém og Pick Szeged munu mætast í úrslitaleik ungversku bikarkeppninnar í handbolta. Það varð ljóst eftir öruggan sigur liðanna í undanúrslitaleikjum sínum fyrr í dag. Veszprém, lið Bjarka Más Elíssonar og Arons Pálmarssonar, vann þægilegan 40-26 sigur gegn Tatabánya í undanúrslitum. Pick Szeged, lið Janusar Daða Smárasonar, vann svo 34-29 gegn Gyöngyös í hinum undanúrslitaleiknum. Liðin tvö eru þau langstærstu í ungverska handboltanum og hafa einokað bikarkeppnina síðustu áratugi. Veszprém hefur unnið síðustu fimm ár og orðið bikarmeistari lang oftast, 31 sinnum alls, en Pick Szeged hefur unnið keppnina sjö sinnum, síðast árið 2019.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Sjá meira