Létt fólk hvatt til að halda sig innandyra til að fjúka ekki Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 12. apríl 2025 14:00 Vindhraði gæti náð rúmlega fjörutíu metrum á sekúndum í Peking um helgina. AP/Ng Han Guan Kröftugir vindar í norðanverðu Kína hafa valdið miklu tjóni og er fólk sem er léttara en fimmtíu kíló hvatt til þess að halda sig innandyra til að fjúka ekki.
Vindhraði mun ná rúmlega fjörutíu metrum á sekúndu í höfuðborginni Peking og nærliggjandi borgum í Hebeihéraði um helgina. Appelsínugul viðvörun hefur verið gefin út af kínversku veðurstofunni í höfuðborginni í fyrsta sinn í áratug. Ferðamannastöðum og almenningsgörðum hefur verið lokað yfir helgina og flugferðum og lestarferðum aflýst. Kínverska veðurstofan hefur gefið það út að vindhraðinn gæti slegið met frá árinu 1951 um helgina. Sterkir vindar frá köldu hringiðukerfi yfir Mongólíu valda oft óveðri í norðvesturhluta Kína. Kínverska veðurstofan mælir vindhraða á sautján stiga skala. Vindur sem nemur ellefu á skalanum veldur „alvarlegu tjóni“ og vindur sem nemur tólf hefur í för með sér „stórfellda eyðileggingu.“ Um helgina er spáð vindum á bili ellefu til þrettán stiga samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Samkvæmt því sem kínverska ríkisútvarpið greinir frá hefur að minnsta kosti 413 flugferðum frá alþjóðaflugvellinum í Peking verið aflýst auk þess sem járnbrautalestalestir til og frá flugvellinum hafa verið kyrrsettar. Hundruð trjáa verið rifin upp með rótum og ýmis farartæki orðið fyrir tjóni. Engin slys á fólki verið tilkynnt til yfirvalda enn sem komið er.
Kína Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira