Segja Barcelona hafa svindlað og kærðu Sindri Sverrisson skrifar 28. mars 2025 17:15 Inigo Martinez í leiknum gegn Osasuna sem nú ríkir óvissa um. Getty/Joan Valls Osasuna-menn telja að Barcelona hafi verið á svig við reglurnar með því að tefla Inigo Martinez fram í leik liðanna í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gær. Þeir hafa því kært úrslit leiksins en Barcelona vann 3-0.
Leikurinn átti að fara fram 8. mars en var frestað vegna skyndilegs fráfalls læknis Barcelona-liðsins, Carles Minarro Garcia. Leikurinn var svo settur á í gær, daginn eftir að landsleikjahléinu lauk. Hansi Flick, stjóri Barcelona, gagnrýndi þetta enda var hann án fyrirliðans og 27 marka mannsins Raphinha sem þurfti að ferðast heim frá Suður-Ameríku eftir landsleiki Brasilíu. Martinez gaf ekki kost á sér með spænska landsliðinu vegna meiðsla en var svo með í leiknum í gær. Samkvæmt BBC eru reglur FIFA skýrar varðandi það að leikmenn megi ekki spila fyrir sitt félagslið innan við fimm dögum eftir landsleikjaglugga, hafi þeir ekki getað gefið kost á sér í landsleiki, nema með sérstöku leyfi knattspyrnusambands landsins. Martinez lék allar 90 mínúturnar í sigri Barcelona í gær og er liðið nú með þriggja stiga forskot á Real Madrid á toppi spænsku deildarinnar en Osasuna í 14. sæti með 33 stig, sex stigum frá fallsæti. Í yfirlýsingu frá Osasuna segir: „Club Atletico Osasuna telur að Inigo Martinez, sem var ekki með spænska landsliðinu vegna meiðsla, hafi ekki mátt spila leikinn í gær samkvæmt reglum FIFA. Þar af leiðandi hefur félagið kært til að verja rétt þess og gæta sanngirni og jafnræðis í keppninni.“
Spænski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Haaland sló met Agüero Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Sjá meira