Þetta er meðal þess sem fram kemur í Einkalífinu þar sem Brynjar Karl ræðir meðal annars æskuna í Breiðholtinu, hvernig hann forðaðist þar „ljónin“ og hvernig hann var frelsissviptur sex ára gamall af krökkum í hverfinu og læstur inni í loftvarnarbyrgi. Hann lýsir því líka þegar hann leitaði sér aðstoðar á geðdeild 21 árs gamall.
Brynjar Karl hefur vakið gríðarlega athygli fyrir hispurslausa tjáningu og óhefðbundnar þjálfunaraðferðir sem þjálfari Aþenu og annarra liða. Brynjar ræðir körfuboltaferilinn, kynferðislega áreitni sem hann varð fyrir, árin í Bandaríkjunum og ævintýralega velgengni Sideline Sports svo fátt eitt sé nefnt.