Ekki komið að kveðjustund hjá Gunnari Nelson Aron Guðmundsson skrifar 5. febrúar 2025 07:33 Gunnar Nelson mætir Kevin Holland á bardagakvöldi UFC í London þann 22.mars næstkomandi. Vísir/Einar UFC bardagakappinn Gunnar Nelson á ekki von á því að komandi bardagi hans í London verði hans síðasti á atvinnumannaferlinum. Andstæðingur hans í komandi bardaga er af skrautlegri gerðinni og leiðist ekki að tala við andstæðinga sína í búrinu. Gunnar vonar að hann tali um eitthvað sem hann hefur áhuga á.
Það fara að verða komin tvö ár síðan að Gunnar barðist síðan í UFC, það var þegar að hann kláraði Bandaríkjamanninn Bryan Barberena í fyrstu lotu á bardagakvöldi í O2 höllinni í London. Gunnar hefur stefnt á endurkomu í nokkra mánuði núna. Bryan Barberena átti aldrei séns í Gunnar Nelson þegar þeir mættustGetty/Catherine Ivill „Við erum búnir að vera leita að andstæðingi síðan í fyrra, vorum þá að horfa á bardaga í desember. Það leið einhver mánuður þar sem að við töldum okkur vera að fá andstæðing en á endanum fékkst ekkert. Þeir eiginlega fóru þá strax að tala um bardagakvöldið í mars í London,“ segir Gunnar við íþróttadeild. Er maður að pirra sig á því þegar að svona er þegar að þú ert klár í að berjast í desember en þarft svo að bíða fram í mars? „Nei það þýðir ekkert. Jú auðvitað er leiðinlegt að vera of mikið á tánum en ég er eiginlega löngu hættur að vera allt of mikið á tánum í svona aðstæðum. Ég hef svo oft misst andstæðing og einhver nýr komið inn í hans stað og stundum ekki. Þetta er einhvern veginn bara partur af þessu. Maður er orðinn helvíti vanur þessu.“ Andstæðingur Gunnars á bardagakvöldinu í mars er Bandaríkjamaðurinn Kevin Holland, vel þekkt stærð innan UFC. Talandi um það að andstæðingar hafi oft þurft að draga sig frá keppni gegn þér. Ertu að búast við því að mæta Kevin Holland í búrinu í mars? „Ég geri ráð fyrir því,“ svarar Gunni hlægjandi. „En, eins og við höfum séð áður, getur allt gerst.“ Kevin Holland er líflegur karakter.Vísir/Getty Spennandi og þekktur andstæðingur Gunnar er spenntur fyrir því að mæta Holland í búrinu. „Ég er mjög glaður með að hafa fengið andstæðing sem er svona spennandi og þekktur. Sérstaklega fyrir þá sem eru að fylgjast með mér og koma út á bardaga. Þetta er meira spennandi heldur en sumir andstæðingar sem ég hef fengið. Fyrir mér er hann náttúrulega bara bardagamaður, burtséð frá því hvort hann sé vinsæll eða ekki horfi ég bara á hann sem slíkan. Mér finnst þetta mjög skemmtileg viðureign.“ Holland hefur hins vegar séð betri daga á sínum ferli og hefur hann tapað fjórum af síðustu fimm bardögum sínum. Tækifærin eru til staðar fyrir Gunnar til þess að taka hann niður í jörðina þar sem að okkar manni líður best en Holland hefur á sama tíma sýnt veikleikamerki þar. „Hann hefur tapað nokkrum á jörðinni og það gefur augaleið fyrir mig að fara með hann niður eins og ég hef gert áður og er einhvern veginn alltaf svolítið minn bardagastíll. Það breytist held ég ekkert, hefur verið þannig frá því að ég byrjaði í þessu. Það er alltaf betra að vera ofan á en hins vegar gerir maður sig tilbúinn fyrir allt. Ef það verður þannig að við stöndum í einhvern tíma þá er ég líka spenntur fyrir því.“ Stór, höggþungur og villtur Holland hefur verið að flakka á milli millivigtar og veltivigtar. Það verður að segjast eins og er að honum hefur gengið betur í veltivigtinni og í þeirri þyngd mun bardagi hans og Gunnars vera. „Hann er stór og langur. Er með held ég tveggja metra faðm og er um 190 centímetrar á hæð, nokkuð höggþungur og síðan er hann svolítið villtur. Þetta er ekki hefðbundinn stíll sem hann býr yfir. Maður þarf því að vera með viðbrögðin í lagi.“ Holland hefur unnið þrettán bardaga en tapað tíu í UFC Vísir/ Getty Er hann kannski hættulegur út frá því að það hefur náttúrulega alls ekki gengið vel hjá honum upp á síðkastið? Fjögur töp í síðustu fimm bardögum. „Það gæti verið. Það er ákveðinn galli við þetta, að hann sé búinn að tapa reglulega upp á síðkastið. Hins vegar er hann með mjög fína ferilskrá í veltivigtinni og þar munum við berjast, það er að segja ef hann nær vigt. Hefur unnið góða andstæðinga en hefur verið í brasi upp á síðkastið. Það er síðra, minna spennandi, en gæti eins og þú segir gert hann grimmari og hættulegri. Þannig stemmdan að hann þurfi að fara all-in núna með ekkert til að tapa.“ „Vonandi talar hann bara um eitthvað sem ég hef áhuga á“ Eitt hefur Holland þó fram yfir Gunnar. Hann hefur verið mjög virkur í búrinu undanfarin ár. Frá því í september árið 2019 hefur Gunnar barist þrisvar sinnum. Á sama tímabili er Holland búinn að berjast tuttugu og einu sinni. Hefur það áhrif? „Þetta hefur ábyggilega allt áhrif. Ég hef oft verið spurður út í þetta svokallaða ryð (e.ring-rust) þegar að langt líður á milli bardaga en ég hef sjálfur ekki fundið því sérstaklega. Það er ekkert nýtt fólgið í því fyrir mig að stíga inn í búrið eftir svona langa bið. Ég er búinn að vera að þessu í mörg ár. Síðan er hægt að segja á hinn bóginn að hann sé ferskari, með þetta meira ferskt í minni hvernig það er að standa þarna upp á sviðinu. En svo er hann kannski bara þreyttur á þessu.“ Gunnar ber íslenska fánann stolturVísir/Getty Og á meðan að Gunnar er jafn rólegur og við Íslendingar þekkjum hann fyrir, þessi maður sem býr yfir stóískri ró, þá er Holland á sama tíma mjög litríkur karakter sem þykir ekki leiðinlegt að tjá sig um hitt og þetta, meðal annars á meðan á bardögum hans stendur. „Það eru andstæður í þessu. Hann verður ábyggilega blaðrandi allan bardagann, eins og áður. Það er oft talað um að hann láti fúkyrðin dynja í búrinu (e.trash talker) en mér finnst hann aðallega bara vera blaðrandi (e.talker). Hann er bara eitthvað að blaðra. Jú það kemur kannski einhver skítur inn á milli en síðan bara heldur hann ekki kjafti allan tímann.“ En hvað gerir maður í svona stöðu. Þú hefur ábyggilega lent í því að vera innan búrsins og andstæðingurinn að reyna tala við þig. Svararðu því eða læturðu það vera? „Ég hef alveg spáð í þessu. Ég er vanur þessu líka frá æfingum, sumir eru mikið í því að tala. Það getur verið mjög skemmtilegt, fer svona eftir því hvað menn vilja tala um. Vonandi fer hann að tala um eitthvað sem ég hef áhuga á.“ „Á voða erfitt með að hætta þessu“ Bardagi þeirra fer fram á spennandi bardagakvöldi UFC í O2 höllinni í London en þar hafa síðustu tveir bardagar Gunnars farið fram og er hann á tveggja bardaga sigurgöngu. „Það er alltaf gaman að berjast í London. Þó ég hafi nú verið búinn að tala um að það gæti verið gaman að taka einhvern skreppitúr á bardagakvöld annars staðar. Það kemur kannski bara næst.“ Erum við ekki að tala um að þetta sé kveðjubardagi þinn? „Nei ég á eitthvað voða erfitt með að hætta þessu, en við sjáum til. Nei við tökum örugglega einn til viðbótar eftir þennan og svo kannski einn eftir það.“ Mér heyrist á þér að þú hafir íhuga þetta upp á síðkastið. Ertu ekki ákveðinn? „Nei ég er svona hálfpartinn búinn að reyna hætta þessu í smá tíma. Það er bara erfiðara að gera það en að tala um það og hugsa. Þetta er svona… ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég á að segja. Þetta er svo stór partur af manni og ég er enn þá helvíti ferskur, er enn að bæta mig mikið. Mér finnst þetta gaman, finnst þetta spennandi. Hins vegar verða æfingarnar, og undirbúningsfasinn að bardaga (e.camp) alltaf þyngri og þyngri. Skrokkurinn er ekkert að yngjast. Ég hef verið að berjast sem atvinnumaður síðan árið 2007. Ferillinn er orðinn langur. Þótt að ég sé búin að halda mér nokkuð ferskum og æfa skynsamlega og svoleiðis þarf maður á einhverjum tímapunkti að fara gera eitthvað annað.“ Gunnar Nelsonhefur verið lengi aðvísir/getty Búinn að halda sér heitum Eins og fyrr sagði hefur Gunnar verið tilbúinn í nokkra mánuði til þess að taka á sig bardaga og staðan á honum er því mjög góð. „Ég hef verið að halda mér heitum og er tilbúinn í að setja í næsta gír. Það er það sem við höfum verið að gera núna og mér líður mjög vel með það. Skrokkurinn og allt tekur mjög vel við sér. Ég er að fara út á fimmtudaginn og verð að öllum líkindum úti alveg fram að bardaga. Ég byrja á því að fara til Skotlands í stutt stopp, fer síðan til Króatíu og þaðan til Dublin á Írlandi“ Gunnar Nelson pakkaði Barberena saman í O2 ArenaVísir/Getty Hver er hugsunin á bak við það að fara halda erlendis fram að bardaga? „Þar erum við meðal annars að hugsa um æfingafélaga. Það er alltaf gott að fara út fyrir þægindarammann og fá nýja æfingafélaga. Síðan er striking-þjálfarinn minn í Króatíu, MMA-þjálfarinn minn John Kavanagh í Dublin. Ég hef alltaf farið út fyrir bardaga. Það setur mig í gírinn og þar finn ég meira úrval af æfingafélögum í kringum mína þyngd, atvinnumenn í MMA og svoleiðis.“ Og Gunnar er bjartsýnn á góðan árangur gegn Holland. „Ég sé fyrir mér skemmtileg fléttu til að byrja með standandi. Ég er svolítið spenntur fyrir því að sjá hvernig við förum að því. Ég er með mínar hugmyndir og síðan finnst mér nú líklegt að þetta endi niðri og þá reynir maður náttúrulega að vefja höndunum utan um hálsinn á honum.“
MMA Mest lesið Dagur sló í gegn á sviðinu: „Gefið honum ríkisborgararétt“ Handbolti Pavel rýfur þögnina: „Þetta kemur Keflavík ekkert við“ Körfubolti Ekki komið að kveðjustund hjá Gunnari Nelson Sport Þunnskipuð og ísköld framlína ekki endilega stærsta vandamál Amorim Enski boltinn Dagskráin í dag: Skytturnar hans Arteta Sport Aron Sig nýr fyrirliði KR Íslenski boltinn Warriors íhuga að sækja Durant á nýjan leik Körfubolti Trylltust þegar Dagur ávarpaði fjöldann: „Þið eruð klikkað fólk“ Handbolti Markahrókur City varð fyrir kvenhatri og rasisma Enski boltinn Brynjar Karl krefst þess að ÍSÍ láti af meintu níði í garð Aþenu Körfubolti Fleiri fréttir Franska stórliðið staðfestir komu Dags Ný tækifæri fyrir syni Péturs: „Auðvitað saknar maður þess að vera með þeim“ Tiger syrgir móður sína Markahrókur City varð fyrir kvenhatri og rasisma Dagur sló í gegn á sviðinu: „Gefið honum ríkisborgararétt“ Pavel rýfur þögnina: „Þetta kemur Keflavík ekkert við“ Ekki komið að kveðjustund hjá Gunnari Nelson Þunnskipuð og ísköld framlína ekki endilega stærsta vandamál Amorim Dagskráin í dag: Skytturnar hans Arteta Aron Sig nýr fyrirliði KR Warriors íhuga að sækja Durant á nýjan leik Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks „Ekki allir sem þora að taka síðasta skotið“ Ármann áfram ósigrað eftir háspennuleik í Vesturbæ Afturelding, Fram og Valur með góða sigra Uppgjörið: FH - Stjarnan 29-29 | Jafnt í Krikanum Tryggvi Snær skilaði sínu þegar Bilbao komst áfram ÍBV vann í Grafarvogi Félix tókst að færa sig frá Lundúnum til Mílanó Heiðdís aftur í Kópavoginn Krísuástand hjá Real fyrir stórleikina Brynjar Karl krefst þess að ÍSÍ láti af meintu níði í garð Aþenu Allt sem þú þarft að vita um stærstu skipti síðari ára Mourinho stoltur af landsliði Portúgals í handbolta Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Miðar á heimaleik Íslands á þrjátíu evrur Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita Álftnesingar sóttu stóra skyttu Tekur Pavel við Keflavík? Sjá meira