Körfubolti

Kefl­víkingar bæta við sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Nigel Pruitt í leik með Þór Þ. á síðasta tímabili.
Nigel Pruitt í leik með Þór Þ. á síðasta tímabili. vísir/bára

Körfuboltamaðurinn Nigel Pruitt, sem lék með Þór Þ. í fyrra, er genginn í raðir Keflavíkur og mun klára tímabilið með liðinu.

Liðin í Bónus deild karla hafa verið dugleg að styrkja sig undanfarna daga, fyrir lokasprett tímabilsins. Félagaskiptaglugganum verður lokað á miðnætti.

Pruitt var með 17,9 stig, 6,8 fráköst og 2,8 stoðsendingar að meðaltali í leik með Þór á síðasta tímabili. Hann er þrítugur Bandaríkjamaður með þýskt ríkisfang.

Pruitt leikur sinn fyrsta leik fyrir Keflavík þegar liðið sækir KR heim í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Keflavík er í 7. sæti Bónus deildarinnar með fjórtán stig eftir fimmtán leiki. Liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×