Veður

Næsta lægð skellur á landið og von á asa­hláku og hvassvirði

Atli Ísleifsson skrifar
Spáð er áframhaldandi umhleypingum um helgina með hvössum sunnanáttum.
Spáð er áframhaldandi umhleypingum um helgina með hvössum sunnanáttum. Vísir/Vilhelm

Næsta lægð nálgast landið í dag og gengur í suðaustanstorm og jafnvel -rok með rigningu og hlýindum, en helst að mestu þurrt á Norður- og Austurlandi.

Á vef Veðurstofunnar segir að ekki sé gert ráð fyrir snjókomu, nema til fjalla. Veðurviðvaranir vegna asahláku og hvassviðris eru í gildi um mest allt land.

„Spáð er áframhaldandi umhleypingum um helgina með hvössum sunnanáttum, talsverðri rigningu, hlýindum og asahláku og er því fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum og fráveituskurðum til að fyrirbyggja vatnstjón. Þó er útlit fyrir að það dragi allnokkuð úr vindi síðdegis á laugardag, en svo þarf að gefa sunnudagslægðinn gaum, nýjustu spár gera ráð fyrir að hún verði seinna á ferðinni en fyrri spár og eins að hún verði austar. Það gæti orðið til að veður verði ekki seins slæmt en á móti yrðu þá minni hlýindi.

Vegna veðurhæðar eru ferðalangar hvattir til aka með gát, einkum ef ökutækin taka á sig vind,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Sunnan 15-23 m/s og rigning eða slydda með köflum, en hægari og bjart með köflum norðaustanlands. Dregur heldur úr vindi síðdegis. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á sunnudag: Gengur í austan hvassviðri eða storm með slyddu eða rigningu seinnipartinn, einkum suðaustan og austantil, en mun hægari og úrkomuminna um landið vestanvert. Hiti nálægt frostmarki.

Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og allvíða él, en bjartviðri austantil. Kólnandi veður.

Á þriðjudag: Suðvestanátt með éljagangi, en bjart að mestu norðaustantil. Hiti um og undir frostmarki.

Á miðvikudag: Búast má við sunnanhvassviðri með úrhellisrigningu og hlýnandi veðri í bili.

Á fimmtudag: Líkur á suðvestanátt með éljum vestantiol, en rigning austantil og mun hlýrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×