Handbolti

Oggi snýr aftur heim

Sindri Sverrisson skrifar
Þorgils Jón Svölu Baldursson fór til Svíþjóðar árið 2023 eftir að hafa verið í stóru hlutverki hjá Val.
Þorgils Jón Svölu Baldursson fór til Svíþjóðar árið 2023 eftir að hafa verið í stóru hlutverki hjá Val. vísir/Hulda Margrét

Þorgils Jón Svölu Baldursson, línu- og varnarmaður, mun leika á ný með Val það sem eftir lifir leiktíðar í handboltanum hér á landi.

Oggi, eins og hann er kallaður, var í stóru hlutverki hjá Val áður en hann fór út í atvinnumennsku til Svíþjóðar sumarið 2023, þegar hann samdi við Karlskrona.

Þar hefur Oggi spilað síðasta eitt og hálfa árið en nú snýr hann aftur á Hlíðarenda og hefur skrifað undir samning sem gildir til sumarsins 2027.

Oggi er uppalinn hjá Val og hefur unnið fjölda titla með félaginu. Hans fyrsti leikur eftir heimkomuna gæti orðið gegn KA á Akureyri næsta þriðjudagskvöld, þegar keppni í Olís-deildinni hefst að nýju eftir HM-hléið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×