Enski boltinn

Oliver dæmir um helgina þrátt fyrir morð­hótanir

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Michael Oliver rekur Myles Lewis-Skelly, leikmann Arsenal, af velli gegn Wolves. Dómurinn hefur dregið dilk á eftir sér.
Michael Oliver rekur Myles Lewis-Skelly, leikmann Arsenal, af velli gegn Wolves. Dómurinn hefur dregið dilk á eftir sér. getty/Chris Brunskill

Michael Oliver dæmir leik í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi þrátt fyrir að hafa fengið morðhótanir eftir að hafa rekið Myles Lewis-Skelly, leikmann Arsenal, af velli í leik gegn Wolves á laugardaginn.

Oliver og fjölskyldu hans hafa borist morðhótanir eftir leikinn á laugardaginn. Í fyrri hálfleik gaf Oliver Lewis-Skelly afar umdeilt rautt spjald og eftir það var fjandinn laus.

Ensku dómarasamtökin höfðu samband við lögregluna eftir Oliver bárust hótanir og málið er núna til rannsóknar.

Fyrrverandi formaður ensku dómarasamtakanna, Keith Hackett, sagði að Oliver ætti ef til vill ekki að dæma næstu vikurnar vegna málsins.

En Oliver sjálfur vill ólmur dæma og nú er búið að úthluta honum nýliðaslag Ipswich Town og Southampton á sunnudaginn.

Hann mun einnig dæma grannaslag Everton og Liverpool 12. febrúar. Leikurinn átti að fara fram í desember en var frestað vegna stormsins Darragh.


Tengdar fréttir

Segir VAR ekki hafa þorað að snupra Oli­ver

Ákvörðun dómara í leik Arsenal og Wolves að reka Myles Lewis-Skelly af velli hefur fengið mikla gagnrýni. Sérfræðingur Sky Sports segir VAR-dómara ekki hafa þorað að snúa ákvörðun Michael Oliver við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×