Enski boltinn

Eftir sjö töp í röð tókst Leicester að vinna Tottenham

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jamie Vardy skoraði jöfnunarmarkið fyrir Leicester mjög snemma í seinni hálfleik.
Jamie Vardy skoraði jöfnunarmarkið fyrir Leicester mjög snemma í seinni hálfleik. Alex Pantling/Getty Images

Eftir sjö tapleiki í röð í ensku úrvalsdeildinni vann Leicester 2-1 á útivelli gegn Tottenham. Brentford sótti 2-1 sigur á sama tíma gegn Crystal Palace á Selhurst Park.

Tottenham tók forystuna á 33. mínútu þegar Pedro Porro sendi fyrirgjöf á fjærstöngina sem Richarlison stangaði í netið. Þetta var annað mark hans í jafnmörgum deildarleikjum.

Heimamenn héldu því inn í hálfleik með forystuna en það breyttist fljótt því Leicester jafnaði í upphafi seinni hálfleiks, aðeins 58 sekúndum eftir að hann hófst.

Jamie Vardy var þar á ferð með sitt sjöunda deildarmark á tímabilinu eftir, potaði boltanum yfir línuna eftir klafs í teignum.

Það var skammt stórra högga á milli fyrir heimamenn því aðeins þremur mínútum síðar lentu þeir undir. Bilal El Khannouss skoraði markið með laglegu innanfótarskoti rétt fyrir utan teig.

Það sem eftir lifði leiks tókst Leicester að verja forystuna, með kjafti og klóm og fimm gulum spjöldum.

Sigurinn tók Leicester upp í 17. sæti deildarinnar, tveimur sætum neðar og sjö stigum á eftir Tottenham.

Crystal Palace - Brentford 1-2

Brentford sótti þrjú stig á Selhurst Park og Bryan Mbuemo tókst að halda vítanýtingu sinni fullkominni.

Eftir markalausan og tíðindalítinn fyrri hálfleik fékk Brentford vítaspyrnu dæmda á 62. mínútu þegar Maxence Lacroix fór með takkana hátt á loft inni í eigin vítateig.

Bryan Mbuemo steig á punktinn og skaut í stöngina, en hann fékk að endurtaka spyrnuna þegar myndbandsdómarinn benti á að leikmenn Crystal Palace hefðu lagt of snemma af stað í árás á frákastið. Mbuemo skoraði svo í annarri tilraun.

Heimamenn voru afar ósáttir með ákvörðun dómarans og markmaðurinn Dean Henderson fékk gult spjald fyrir að sparka boltanum upp í stúku í átt að stuðningsmönnum Brentford.

Kevin Schade bætti öðru marki við áhugaverðan hátt á 80. mínútu, skallaði boltann með gagnauganu og þurfti aðhlynningu sjúkraþjálfara eftir á.

En sem betur fer fyrir Brentford endaði boltinn í netinu því Crystal Palace skoraði aðeins fimm mínútum síðar. Romain Esse var þar á ferð eftir stoðsendingu Daniels Munoz.

Palace kom jöfnunarmarki ekki að þrátt fyrir níu mínútna uppbótartíma og Brentford fór með 1-2 sigur.

Liðin sitja í ellefta og tólfta sæti deildarinnar en Brentford er með 31 stig og fjögurra stiga forystu á Crystal Palace eftir sigurinn í leik dagsins, sem var hluti af 23. umferð deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×