Á tónleikunum mun sveitin fagna afmæli annarrar plötu sinnar, Fyrir ofan himininn, sem kom út árið 2002. Upphaflega stóð til að fagna því afmæli árið 2022 en sökum heimsfaraldurs og annara verkefna var afmælinu frestað um tíma. Aðdáendur SIGN geta dustað rykið af svarta eyelinernum því tónleikarnir verða trylltir!

Ragnar Zolberg söngvari sveitarinnar átti svo seinna eftir að ganga til liðs við sænsku hljómsveitina Pain Of Salvation og gerði þar gott mót.
„Þessi plata hefur einungis einu sinni verið leikin öll í heild sinni en það var á útgáfutónleikum í Austurbæ á sínum tíma. Ég er mjög spenntur að fá að spila þessa plötu í heild sinni því hún er í miklu persónulegu uppáhaldi hjá mér,“ segir Ragnar Zolberg söngvari.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þessi plata kom út en sveitin gaf út fimm plötur á árunum 2001-2013 og var tíður gestur á forsíðum breskra tónlistartímarita.
SIGN túraði með Skid Row, Wednesday 13, The Wildhearts og The Answer á sínum tíma og spilaði á rokkhátíðum um allan heim, meðal annars á Download hátíðinni 2008.
Ragnar Zolberg, söngvari sveitarinnar, átti svo seinna eftir að ganga til liðs við sænsku hljómsveitina Pain Of Salvation og gerði þar gott mót.
SIGN hélt síðast tónleika í Reykjavík árið 2021 þegar sveitin fagnaði afmæli fyrstu plötu sinnar, Vindar og breytingar, í Iðnó og seldust miðar þá upp á 90 mínútum.

Miðasala hefst föstudaginn 24. janúar. Einungis einir tónleikar verða í boði og er óhætt að lofa sögulegum og trylltum tónleikum í Gamla bíói!
Hægt er að hlusta á SIGN á Spotify.