Innlent

Lítil virkni frá hrinunni

Árni Sæberg skrifar
Bárðarbunga séð úr lofti í gær.
Bárðarbunga séð úr lofti í gær. Vísir/RAX

Lítil jarðskjálftavirkni hefur mælst í Bárðarbungu síðan áköf jarðskjálftahrina varð þar í gærmorgun á milli klukkan 6 og 9. Stakur skjálfti 2,4 að stærð mældist klukkan 17:17 síðdegis í gær en annars hefur verið lítil skjálftavirkni. Þó er ekki útilokað að jarðskjálftavirkni á svæðinu taki sig aftur upp á næstunni.

Í tilkynningu þess efnis á vef Veðurstofu Íslands segir að jarðskjálftahrinan í gærmorgun sé sú kröftugasta síðan síðustu eldsumbrot urðu í Bárðarbungu frá 2014 til 2015 og eldgos varð í Holuhrauni. Hreyfingar í jarðskjálftunum samræmist aukinni þenslu vegna kvikusöfnunar, sem hafi staðið yfir frá síðustu eldsumbrotum 2015.

Jarðskjálftavirkni hafi farið vaxandi í Bárðarbungu undanfarið og meðal annars hafi fjórir skjálftar mælst um eða yfir 5 að stærð á árinu 2024. Samhliða því hafi mælst aukinn hraði í aflögun vegna kvikuinnstreymis á dýpi undir Bárðarbungu.

Nokkur óvissa sé um hver þróun þessarar virkni verður á næstunni og ekki sé útilokað að jarðskjálftavirkni á svæðinu taki sig aftur upp. Að svo stöddu verði fluglitakóði fyrir Bárðarbungu áfram gulur. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist náið með virkni í Bárðarbungu og fréttatilkynningar verði sendar út ef virkni eykst að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×