Innlent

Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta fyrir í­búa og í­hugar að flytja

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Ingibjörg Mjöll Pétursdóttir íbúi í Árskógum íhugar að flytja vegna vöruskemmunnar sem hefur risið við fjölbýlishúsið.
Ingibjörg Mjöll Pétursdóttir íbúi í Árskógum íhugar að flytja vegna vöruskemmunnar sem hefur risið við fjölbýlishúsið. vísir

Íbúi í Árskógum íhugar að flytja úr húsnæðinu vegna nálægðar við vöruskemmuna í Álfabakka.Hún telur stjórnsýsluúttekt á málinu ekki breyta neinu fyrir íbúa. Tæplega tvö þúsund manns krefjast þess að framkvæmdir við skemmuna verði stöðvaðar.

Borgarstjórn ákvað í gær á fundi sínum að fela innri endurskoðun borgarinnar að gera stjórnsýsluúttekt á byggingu vöruskemmu við Álfabakka 2 í Breiðholti. Byggingin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að skyggja á útsýni íbúa í Árskógum, þá stendur fjölbýlishúsið þétt upp við vöruskemmuna. 

Byggingaraðilar hafa frest til mánaðarmóta

Einar Þorsteinsson borgarstjóri sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær, mikilvægt að gera stjórnsýsluúttekt á málinu til komast að því hvað fór úrskeiðis og til að læra af því.

„Við fórum fram á að byggingaraðilar hússins skili okkur tillögum fyrir lok mánaðarins um breytingar á húsinu. Stjórnsýsluúttekt er eitthvað sem tekur aðeins lengri tíma. Þar verður kannað hver ber ábyrgð á ferlinu en úttektin mun líka  gefa okkur vísbendingar um hvernig við getum lært af þessu,“ sagði Einar.

Tvö þúsund undirskriftir á nokkrum dögum

Í vikunni var stofnað til undirskriftarlista á Island.is þar sem farið er fram á að framkvæmdir við Álfabakka verði stöðvaðar. Í morgun höfðu tæplega tvö þúsund manns skrifað undir. 

Íhuga að flytja

Ingibjörg Mjöll Pétursdóttir býr í Árskógum, fjölbýlishúsinu við vöruskemmuna. Hún segir málið í heild sorglegt.

„Ég er döpur yfir þessu. Ég hefði aldrei nokkru tíma keypt húsnæði hér hefði ég vitað að þetta væri framtíðin. Að ég hefði bara þennan græna vegg sem útsýni í stað kvöldsólarinnar.

Ingibjörg býr á jarðhæð í Árskógum og segir að í ofanálag hafi vöruskemman þau áhrif að minni dagsbirta berist inn í íbúðina en áður.

„Ég og konan mín höfum verið að hugsa  hvort við eigum að  leggja á okkur að finna okkur annað húsnæði og flytja. Það var ekki alveg það sem við hugsum okkur þegar við fluttum inn árið 2021, að við þyrftum aftur á gamalsaldri að flytja búferlum,“ segir hún.

Telur stjórnsýsluúttekt litlu breyta

Ingibjörg segir stjórnsýsluúttekt ágæta en hefði viljað haga því máli á annan máta.

„Það er fínasta mál að slík úttekt fari fram en ég sé ekki að það muni virka fyrir okkur. Mér sýnist svona stjórnsýsluákvörðun vera enn eitt dæmið um hvernig á að þagga þetta mál niður og sjá hvort við gefumst upp. Ég hefði frekar viljað að það væru utanaðkomandi sérfræðingar sem gerðu úttekt á þessu frekar en gera svona stjórnsýsluúttekt sem þýðir að sama fólkið er að fara að skoða sjálft sig,“ segir Ingibjörg.


Tengdar fréttir

Innri endurskoðun tekur ferlíkið við Álfabakka fyrir

Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar mun gera ítarlega stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu er varðar Álfabakka 2a, Suður- Mjódd, þar sem hið umdeilda vöruhús Haga hefur valdið mikilli óánægju meðal íbúa.

Sætta sig ekki við neitt annað en að húsið verði rifið

Fleiri en þúsund hafa skrifað undir undirskriftalista um að stöðva framkvæmdir við Álfabakka 2 á meðan farsæl lausn er fundin í málinu. Íbúar ætla að fjölmenna á borgarstjórnarfund á morgun til að kalla eftir aðgerðum. Kristján Hálfdánarson, formaður húsfélagsins í Árskógum 7, íbúðarhúsnæði Búseta við hlið Álfabakka 2, fór yfir kröfur íbúanna í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Dagsljósið hafi gleymst í þéttingu byggðar

Ásta Logadóttir, verkfræðingur hjá Lotu og sérfræðingur í birtu og lýsingu í húsum, segir dagsbirtuna oft gleymast þegar verið er að hanna hús. Hún fagnar nýrri reglugerðarbreytingu á byggingarreglugerð og óskar þess að nýr ráðherra taki hana föstum tökum.

Búseti segir margvíslega galla á deiliskipulaginu

Búseti hefur krafið borgina svara um deiliskipulag sem uppbygging ellefu þúsund metra vöruhúss við Álfabakka 2 byggir á. Skipulagið hafi komið borgarfulltrúum í opna skjöldu og breytingar sem gerðar voru árið 2022 hafi ekki verið í samræmi við lög. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×