Slæmt gengi gestanna heldur á­fram

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Cole Palmer var á skotskónum en Chelsea tókst ekki að landa þremur stigum.
Cole Palmer var á skotskónum en Chelsea tókst ekki að landa þremur stigum. EPA-EFE/DAVID CLIFF

Slæmt gengi Chelsea í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu heldur áfram en liðið náði aðeins jafntefli gegn lánlausu liði Crystal Palace. Lokatölur í Lundúnum 1-1 að þessu sinni.

Cole Palmer kom gestunum í Chelsea yfir eftir rétt rúman stundarfjórðung eftir sendingu frá Jadon Sancho. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks og gestirnir með forystu þegar síðari hálfleikur hófst. 

Þegar átta mínútur voru til leiksloka skoraði Jean-Philippe Mateta fyrir heimamenn eftir undirbúning Eberechi Eze og staðan orðin 1-1, reyndust það lokatölur leiksins.

Chelsea er nú með 36 stig í 4. sæti deildarinnar á meðan Crystal Palace er með 21 stig í 15. sæti. 

Önnur úrslit

  • Aston Villa 2-1 Leicester City
  • Bournemouth 1-0 Everton
  • Southampton 0-5 Brentford

Tengdar fréttir

Meistararnir unnu annan leikinn í röð

Englandsmeistarar Manchester City voru ekki í vandræðum þegar West Ham United kom í heimsókn. Meistararnir eru nú komnir á beinu brautina eftir tvo sigra í röð í ensku úrvalsdeild karla. Lokatölur á Etihad-vellinum 4-1 heimamönnum í vil.

Isak með Newcastle áfram á miklu flugi

Newcastle hélt áfram flugi sínu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, með 2-1 sigri gegn Tottenham. Svíinn Alexander Isak virðist óstöðvandi og skoraði sigurmark leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira