Albert og félagar stálu stigi af Juventus Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. desember 2024 16:30 Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina í dag. Valerio Pennicino/Getty Images Albert Guðmundsson og félagar hans í Fiorentina nældu í stig er liðið heimsótti Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Albert var í byrjunarliði gestanna í dag, en var tekinn af velli eftir um klukkutíma leik. Þá hafði Khephren Thuram komið Juventus í forystu í tvígang og Moise Kean jafnað einu sinni fyrir Fiorentina og staðan því 2-1, Juventus í vil. Lengi vel leit út fyrir að Juventus myndi taka stigin þrjú, en Riccardo Sottil reyndist hetja Fiorentina þegar hann jafnaði metin fyrir liðið á 87. mínútu og þar við sat. Niðurstaðan því 2-2 jafntefli og liðin sitja enn jöfn að stigum í fimmta og sjötta sæti deildarinnar. Fiorentina situr í fimmta sæti með 32 stig og betri markatölu en Juventus, sem hefur gert heil 11 jafntefli í fyrstu 18 leikjunum sínum. Ítalski boltinn
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti