Evrópumeistarar Real Madrid unnu lífsnauðsynlegan 3-2 útisigur á Atalanta í Meistaradeildinni í kvöld.
Real Madrid þurfti nauðsynlega á stigum að halda enda hefur gengið illa í Meistaradeildinni að undanförnu.
Þessi sigur skilar liðinu upp í átjánda sæti en liðið er níu stigum á eftir toppliði Liverpool.
Kylian Mbappé kom Real í 1-0 strax á tíundu mínútu með frábærri afgreiðslu eftir stoðsendingu frá Brahim Diaz.
Þetta leit því út fyrir að ætla að verða gott kvöld fyrir Mbappé en hann fór síðan meiddur af velli á 36. mínútu.
Charles De Ketelaere jafnaði fyrir Atalanta úr vítaspyrnu í uppbótatíma fyrri hálfleiks.
Real menn byrjuðu hins vegar seinni hálfleikinn vel og skoruðu tvö mörk á fjögurra mínútna kafla.
Vinicius Junior skoraði fyrra markið á 56. mínútu og lagði upp hitt fyrir Jude Bellingham á 59. mínútu.
Heimamenn í Atalanta voru ekki búnir að gefast upp og Ademola Lookman minnkaði muninn á 65. mínútu.
Real tókst hins vegar að landa sigrinum og koma sér í mun betri mál í Meistaradeildinni. Það mátti samt ekki muna miklu að jöfnunarmarkið kæmi á síðustu sekúndum leiksins.