Kannabissérfræðingurinn kom að ræktun á öðrum sveitabæ Árni Sæberg skrifar 10. desember 2024 12:31 Geir Elí hefur verið sagður sérfræðingur í kannabisræktun. Myndin er úr safni. Gett/Ben McLeod Geir Elí Bjarnason hefur verið dæmdur til 27 mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot með því að framleiða kannabisefni. Um er að ræða tvö mál, annars vegar kannabisræktun á sveitabænum Hjallanesi, sem er miðlægur í Saltdreifaramálinu svokallaða, og hins vegar kannabisræktun á öðrum sveitabæ. Fimm aðrir hafa hlotið dóm í síðara málinu.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp þann 3. desember síðastliðinn, segir að lögregla hafi fylgst með Geir Elí í tengslum við rannsókn á framleiðslu fíkniefna að ótilgreindum sveitabæ. Af atvikum að dæma er ljóst að þar er um Hjallanes að ræða. Þar kom eitt stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar upp árið 2022, þegar lögregla haldlagði saltdreifara sem tugum lítra af amfetamínbasa hafði verið komið fyrir í og stöðvaði stærðarinnar kannabisræktun. Sérfræðingur að sunnan Við aðalmeðferð málsins kom fram að Geir Elí hafi ekki tengst saltdreifaranum með nokkrum hætti og hefði hvorki komið að skipulagningu kannabisræktunarinnar né átt hlut í henni. Hann hefði einungis verið einhvers konar sérfræðingur að sunnan. Hann hafi komið að Hjallanesi þegar eiganda Hjallaness vantaði aðstoð með fræðilega hlið kannabisræktunar. Geir Elí hlaut tveggja ára dóm fyrir málið í Héraðsdómi Reykjavíkur en dómurinn var mildaður í átján mánuði í Landsrétti. Skipulagði aðra ræktun Í dóminum nú segir að á meðan lögregla fylgdist með Geir Elí í tengslum við ferðir hans að Hjallanesi hafi hann vanið ferðir sínar á annan bæ, sem ekki er nefndur í dóminum. Fljótlega hafi grunsemdir vaknað um að hann stæði í kannabisrækt þar. Bærinn hafi verið í eigu konu sem væri móðir manns sem vitað væri að þekkti Geir Elí. Í maí 2022 hafi verið ráðist í húsleit á bænum og húsráðandi handtekinn. Í jarðhýsi skammt frá sumarbústað á jörðinni hafi fundist kannabisplöntur í tveimur aðskildum rýmum í húsi, 50 plöntur í hægra rými og 41 planta í vinstra rými. Þá hafi einnig fundist 708 grömm af maríhúana í sjö smelluláspokum, 3.445 grömm af kannabislaufum og 695 grömm af maríhúana. Kannabis í bjórkútum Þá hafi lögregla einnig séð Geir Elí fara að sumarbústað og grunur hafi vaknað um að þar hafi hann verið að standsetja kannabisræktun. Við húsleit þar hafi meðal annars fundist tveir bjórkútar fullir af ætluðum kannabisefnum auk smelluláspoka, plastpoka og gleríláta með ætluðum kannabisefnum, alls 9,66 kíló af maríhúana. Eigandi sumarbústaðarins hafi verið handtekinn þegar húsleitin var framkvæmd. Hann var meðal ákærðu í málinu ásamt fimmta manninum, sem gefið var að sök að koma að ræktuninni. Sjötti kom að sækja efni Loks segir frá því að lögregla hafi séð Geir Elí fara í BYKO og kaupa tvo pappakassa. Þaðan hafi hann ekið að sveitabænum og sett fíkniefni í kassana. Þangað hafi svo komið sjötti maðurinn sem ákærður var og tekið við fíkniefnunum og síðar afhent ótilgreindum manni. Við húsleit á heimili sjötta mannsins hafi fundist reiðufé, 100.000 krónur, 300 dollarar, 25 bresk pund og 15 evrur. Í fataherbergi inn af hjónaherbergi hafi fundist reiðufé, alls 1,4 milljónir króna, vafið í álpappír og inni í sokkum. Allt þetta reiðufé hafi verið haldlagt. Allir dómar skilorðsbundnir Í dóminum segir að sannað teldist að þau fimm sem ákærð voru fyrir ræktun kannabiss hafi staðið saman að ræktuninni og væru því öll sek, þó að þáttur þeirra í brotinu væri mismikil. Þar sem málið hafi komið upp árið 2022 teldist eðlilegt að skilorðsbinda refsingu þeirra allra vegna dráttar á rannsókn. Í þeim efnum var vísað til þess að dómar hafi gengið í saltdreifaramálinu strax árið 2022. Brot Geirs Elís var framið áður en dómur gekk í saltdreifaramálinu og því var sá dómur tekinn upp og dæmt í málinu eins og um eitt mál hefði verið að ræða. Hann var dæmdur í 27 mánaða fangelsi. Konan sem var húsráðandi á bænum var dæmd til níu mánaða fangelsisvistar, sonur hennar tólf mánaða, húsráðandi sumarbústaðarins tólf mánaða og fimmti maðurinn níu mánaða. Sá sem tók við efnunum játaða brot sín skýlaust og hlaut tveggja mánaða fangelsisdóm. Hann lagðist aftur á móti gegn kröfu ákæruvaldsins um upptöku reiðufjárins. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu og var dæmdur til að þola upptöku alls fjárins. Allir sakborningar voru dæmdir til að greiða málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, á bilinu 967 þúsund til 1,28 milljóna króna, fyrir utan einn en verjandi hans krafðist ekki málsvarnarlauna.
Fíkniefnabrot Dómsmál Saltdreifaramálið Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira