Bowen fagnaði sigurmarkinu með treyju Michail Antonio Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. desember 2024 21:58 Jarrod Bowen fagnar marki sínu í kvöld með treyju Michail Antonio. Getty/Justin Setterfield West Ham vann gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur á Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en það var orðið sjóðheitt undir spænska knattspyrnustjóranum Julen Lopetegui fyrir leikinn. Úrslitin gætu hins vegar þýtt endalok fyrir knattspyrnustjóra Wolves.
West Ham hafði tapað tveimur leikjum í röð og aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum. Liðið er nú í fjórtánda sætinu en aðeins einu stigi á eftir Manchester United. Úlfarnir sitja aftur á móti í fallsæti en þeir eru fjórum stigum frá öruggu sæti. Leikmenn West Ham hituðu allir upp í treyju Michail Antonio fyrir leikinn en jamaíski framherjinn slasaðist í bílslysi um helgina og óttast er um framtíð hans í fótboltanum. Jarrod Bowen var öflugur fyrir West Ham í fjarveru Antonio en hann var bæði með mark og stoðsendingu í leiknum í London í kvöld. Bowen lagði upp fyrra markið fyrir Tomas Soucek sem skoraði með skalla á 54. mínútu. Stuttu síðar dæmdi Varsjáin mark af Mohammed Kudus. Kudus kom boltanum tvívegis í markið í kvöld en var dæmdur rangstæður í bæði skiptin. Matt Doherty jafnaði metin fyrir Wolves á 69. mínútu en það tók West Ham liðið aðeins þrjár mínútur að komast aftur yfir. Jarrod Bowen skoraði þá eftir stoðsendingu frá Kudus og það reyndist vera sigurmarkið í leiknum. Hann fagnaði marki sínu með því að lyfta treyju Michail Antonio fyrir aftan markið. Úlfarnir töpuðu þarna þriðja leiknum í röð og hafa aðeins unnið tvo af fimmtán leikjum sínum í deildinni í vetur. Þetta gæti því hafa verið síðasti leikur knattspyrnustjórans Gary O'Neil.
Enski boltinn Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira