Kathaleen McCormick komst að sömu niðurstöðu í janúar síðastliðnum eftir að hluthafar í Tesla ákváðu að leita til dómstóla. Þá sagði hún launapakkann í meira lagi óhóflegan og ítrekaði í gær þá afstöðu sína, þrátt fyrir að meirihluti stjórnar hafi samþykkt pakkann á ný í millitíðinni.
Fjárfestar á borð við norska olíusjóðinn og lífeyrissjóð kennara í Kaliforníu greiddu atkvæði gegn launapakkanum, sem stjórnin sagði nauðsynlegan til að halda Musk hjá Tesla.
Launapakkinn var fyrst ákvarðaður árið 2017 og samþykktur af meirihluta hluthafa árið 2018. Einn hluthafanna sagði stjórnina hins vegar hafa verið misvísandi í umfjöllun sinni um pakkann í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar og ákvað að höfða mál.
Eftir ákvörðun dómarans í janúar voru aftur greidd atkvæði um hann í sumar og pakkinn samþykktur á ný.
McCormick sagði í janúar að umfjöllun stjórnar um launapakkann hefði verið ábótavant og benti meðal annars á að hún væri skipuð fjölmörgum nánum samstarfsmönnum Musk, til að mynda skilnaðarlögmanninum hans.