Næststærsta gosið hingað til Jón Ísak Ragnarsson skrifar 29. nóvember 2024 15:41 Virknin er áfram stöðug. Vísir/Vilhelm Eldgosið sem nú stendur yfir er næststærsta eldgosið hingað til á Sundhnúksgígaröðinni. Gasmengun mælist óholl á gönguleiðum við gosstöðvarnar. Gosið heldur áfram með stöðugri virkni og hraunflæðið frá virka gígnum er nú mest til suðausturs að Fagradalsfjalli.
Vísbendingar eru um að kvika streymi áfram af dýpi inn á söfnunarsvæðið undir Svartsengi en litlar breytingar eru á gosóróa. Mælingar Veðurstofunnar á útstreymi í gær sýndu að um 64 – 71 kg/s af SO2 streymdu frá eldgosinu. Áfram mætti því gera ráð fyrir gasmengun næstu daga, og það ætti sérstaklega við á gönguleiðum við Fagradalsfjall nálægt gosstöðvunum. Kvikan orðin 47 milljón rúmmetrar Niðurstöður úr mælingum Náttúrufræðistofnunar í gær sýndu að hraunbreiðan sem myndast hefur í þessu gosi er orðin 9,1 ferkílómetrar að flatarmáli, og rúmmál hennar um 47 milljón rúmmetrar. Hraunbreiðan er að meðaltali rúmlega 5 metra þykk. Eldgosið, sem hófst fyrir 9 dögum síðan, er þannig orðið það næststærsta að rúmmáli af þeim eldgosum sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni síðan í desember 2023. Hraunbreiðan sem myndaðist í eldgosinu sem stóð í um 15 daga, frá 22. ágúst til 5. september, er sú stærsta að rúmmáli eða um 61 milljón m3 . Hraunbreiðan sem myndaðist í eldgosinu frá 29. maí til 22. júní er sú þriðja stærsta eða um 45 milljón m3. Kort sem sýnir útbreiðslu hraunsins sem hefur myndast í þessu gosi eog staðsetningu virka gígsins eins gossprungunnar (rauð lína) eins og hún var kl. 03:39 í nótt. Einnig eru sýndar þær hraunbreiður sem hafa myndast á svæðinu frá desember 2023 (Fjólubláar þekjur). Kortið er byggt á gögnum úr ICEYE gervitungli.Veðurstofan
Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Um helmingur farþega komst lífs af Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira