Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Aron Guðmundsson skrifar 28. nóvember 2024 14:01 Erik ten Hag var látinn taka poka sinn undir lok síðasta mánaðar Vísir/getty Það kostaði enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United því sem nemur rúmum 1,7 milljarði íslenskra króna að reka knattspyrnustjórann Erik ten Hag og starfslið hans frá félaginu. Ef litið er á kostnað félagsins við starfslok knattspyrnustjóra frá stjóratíð Sir Alex Ferguson kemur í ljós margra milljarða reikningur.
Frá þessu greinir The Athletic núna í morgun og vitnar í fjórðungsuppgjör enska félagsins sem gert var opinbert í gær. Eftir mögur úrslita á tímabilinu var Erik ten Hag sagt upp störfum undir lok síðasta mánaðar og kostaði það Manchester United 10,4 milljónir punda, því sem nemur rúmum 1,7 milljarði íslenskra króna að gera það. Portúgalinn Rúben Amorim var ráðinn inn sem knattspyrnustjóri Manchester United í stað Ten Hag og tók hann með sér nokkra samstarfsmenn frá Sporting Lissabon í þjálfarateymið og þurfti Manchester United að reiða fram ellefu milljónir punda, því sem nemur rétt rúmum 1,9 milljarði íslenskra króna í þeim skiptum. The Athletic hefur tekið það saman að allt frá því að David Moyes var sagt upp störfum árið 2014, eftir að hafa takið við knattspyrnustjórastöðunni af Sir Alex Ferguson, hefur Manchester United eytt um 70 milljónum punda við að gera upp við knattspyrnustjóra sem reknir eru frá félaginu. Það jafngildir um 12,2 milljörðum íslenskra króna á núvirði. Rúben Amorim stýrði Manchester United í fyrsta sinn um síðastliðna helgi er liðið gerði 1-1 jafntefli við Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni. Hann stýrir sínum fyrsta leik á Old Trafford í kvöld þegar að Manchester United tekur á móti norska liðinu Bodo/Glimt í Evrópudeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira