Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Forlagið 22. nóvember 2024 14:12 Gunnar Helgason kynnti nýlega nýjustu bók sína, Stella segir bless, í Smáralind. Með í för voru Felix Bergsson, Tónafljóð og Skólakór Kársnesskóla. Gunnar Helgason fyllti Smáralindina af bókþyrstum gestum á dögunum þegar hann kynnti nýja bók til leiks og tróð upp með fríðu föruneyti.
Hann bauð þjóðinni til veislu í tilefni útgáfu bókarinnar Stella segir bless en það er síðasta bókin í bókaflokknum um Stellu. Gunnar var alsæll með móttökurnar og mjög þakklátur öllum sem mættu í Smáralindina og fögnuðu með honum útgáfu nýju bókarinnar. Fyrsta bókin var Mamma klikk en hún kom út fyrir næstum 10 árum. Flestir krakkar á Íslandi þekkja nú til Stellu og skrautlegu fjölskyldunnar hennar: Mömmu klikk, pabba prófessors, ammanna, systkinanna fimm og nojaða nágrannans. Dagskráin hófst með skemmtiatriðum frá Gunna og Felix, Tónafljóðum og Skólakór Kársnesskóla. Þar var á meðal annars frumflutt glænýtt jólalag þar sem Gunni og Felix fengu Tónafljóð til liðs við sig. Fjöldi fólks lagði leið sína í Smáralind til að horfa á þau syngja og sprella, ásamt því að taka á móti glaðningum frá Forlaginu og fá áritun frá metsöluhöfundinum sjálfum. Óhætt er að segja að gleðin hafi verið við völd eins og sést á meðfylgjandi myndum. Gunnar var alsæll með móttökurnar og mjög þakklátur öllum þeim sem mættu í Smáralindina og fögnuðu með honum útgáfu nýju bókarinnar. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt og ég vona að allir hafi skemmt sér jafn vel og við gerðum,“ sagði Gunnar. Gunnar Helgason áritað fjölda bóka.
Menning Jól Bókaútgáfa Bókmenntir Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira