John Prescott fallinn frá Atli Ísleifsson skrifar 21. nóvember 2024 07:36 Tony Blair og John Prescott árið 2005. EPA Breski stjórnmálamaðurinn John Prescott er látinn, 86 ára að aldri. Hann gegndi embætti aðstoðarforsætisráðherra Bretlands um tíu ára skeið, í stjórnartíð Tony Blair.
Breskir fjölmiðlar greina frá andlátinu í morgun og vísa í fjölskyldu Prescott. Hann er sagður hafa andast á hjúkrunarheimili þar sem hann dvaldi, en hann hafði um árabil glímt við Alzheimer. Prescott var næstráðandi í breska Verkamannaflokknum frá 1997 til 2007 og fram til ársins 2001 var hann einnig ráðherra samgöngu-, umhverfis- og byggðamála. Hann sat á þingi í um fjörutíu ár og hafði þar áður verið virkur innan verkalýðshreyfingarinnar. Prescott var um árabil einn helsti leiðtogi vinstrivængs flokksins og lýsir Reuters honum sem einum af „litríkustu“ ráðherrunum í ríkisstjórn Blair. Hann hafi þekktur fyrir að vera skýrmæltur stjórnmálamaður sem hafi lagt mikið á sig til að byggja brýr á milli ólíkra fylkinga innan Verkamannaflokksins. Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, segist miður sín að frétta af andláti Prescott og Keir Starmer, núverandi forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, segir Prescott hafa verið „sannkallaðan risa innan verkamannahreyfingar landsins“.
Andlát Bretland Mest lesið Segir Robert frænda sinn athyglissjúkt rándýr Erlent Viðvörunarljós hefðu átt að blikka í ráðuneytinu Innlent „Líklegt að framganga Ingu liggi þungt á mörgum samráðherrum“ Innlent Gómuðu leðurblökuna Innlent Líkur á eldgosi fara vaxandi Innlent Hvatvísin hafi verið við völd þegar hún tók upp tólið Innlent Skýtur fast á Kristrúnu: „Þetta heitir að skrópa í vinnunni“ Innlent Örfáir læknar sinni hundruðum Innlent Inga iðrast og biðst afsökunar á símtali Innlent Fólk að „gambla“ með líf sitt ef það kaupir svona lyf Innlent Fleiri fréttir Áttatíu og fimm prósent vilja ekki tilheyra Trump Segir Rússa hafa ætlað að ráða fleiri iðnaðarleiðtoga af dögum Segir Robert frænda sinn athyglissjúkt rándýr Mona Lisa fær sérherbergi Forsætisráðherra Serbíu segir af sér í kjölfar mótmæla Sökuð um að hafa pyntað dóttur sína fyrir fylgjendur og peninga Google breytir nafninu á Mexíkóflóa Segja átta látna af þeim 26 gíslum sem láta á lausa Trump enn iðinn við kolann: Beinir sjónum að hernum og alþjóðasamvinnu Svíar leggja hald á skip vegna skemmda á sæstreng Senda Trump skilaboð og auka viðbúnað við Grænland Þjóðaröryggisráðgjafi skildi gögnin sín ítrekað eftir á glámbekk Ein stærsta borg Austur-Kongó í höndum uppreisnarmanna Áttatíu ár frá frelsun Auschwitz: „Ég hverf aftur til Auschwitz á hverjum degi“ Lúkasjenka lýstur sigurvegari umdeildra forsetakosninga Segja yfirvöld hafa komið í veg fyrir björgun þriggja drengja Íbúar Norður-Gasa farnir að snúa aftur heim Hótar Kólumbíu refsitollum taki þeir ekki við brottreknu fólki Segir alla íbúa Grænlands vilja undir Bandaríkin Musk birtist óvænt og ávarpaði samkomu fjarhægrimanna Sækist eftir sjöunda kjörtímabilinu Ísraelsmenn saka Hamas um brot á samkomulaginu Birta bráðabirgðaskýrslu vegna slyssins Sleppa fjórum gíslum gegn tvö hundruð föngum Tilnefning Hegseth staðfest með naumum meirihluta Einn látinn og nokkur hundruð þúsund heimili án rafmagns Marilyn Manson verður ekki ákærður Lýsir yfir neyðarástandi vegna átaka í Kólumbíu Sautján ára máli Amöndu Knox lýkur með sakfellingu Eldhaf við stóra olíuvinnslu í Rússlandi Sjá meira