Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2024 21:29 Orri Freyr Þorkelsson var í stóru hlutverki hjá Sporting liðinu í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Orri Freyr Þorkelsson spilaði mjög vel í stórsigri Sporting í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld en Guðmundur Guðmundsson sá sína menn í Fredericia missa frá sér góða stöðu í jafntefli á útivelli.
Sporting fór á kostum í ellefu marka sigri á franska stórliðinu Paris Saint-Germain Handball, 39-28. Það munaði reyndar bara einu marki í hálfleik, 16-15, en portúgalska liðið fór á kostum í þeim seinni sem liðið vann 23-13. Orri Freyr spilaði mjög vel í vinstra horni Sporting og var með sjö mörk úr átta skotum. Fjögur af mörkum hans komu úr vítum. Það var aðeins Martim Mota Costa sem skoraði fleiri mörk eða níu. Sporting hefur unnið fimm af átta leikjum sínum en endaði tveggja leikja taphrinu með þessum góða sigri. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia gerðu 29-29 jafntefli á útivelli á móti norður-makedónska liðinu Eurofarm Pelister. Pelister jafnaði metin á lokamínútum eftir að hafa unnið sig inn í leikinn. Strákarnir hans Guðmundar voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 16-13, en það dugði ekki til. Pelister kom til baka í seinni og náði stig. Þetta var aðeins þriðja stig Fredericia í átta leikjum og með því komst liðið upp fyrir Wisla Plock og af botninum í A-riðlinum. Eurofarm Pelister hefði misst Fredericia upp fyrir sig með tapi en er áfram einu stigi á undan. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Fredericia í kvöld en Anders Kragh Martinusen var markahæstur með sjö mörk.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira