Handbolti

„Bara svona skítatilfinning“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
467570598_10160013541307447_5485062031180584279_n
Vísir/Anton Brink

Úlfar Páll Monsi Þórðarson var súr og svekktur eftir 34-34 jafntefli Vals gegn Vardar í Evrópukeppni karla í handbolta í kvöld.

„Þetta eru bara gríðarleg vonbrigði, sérstaklega miðað við það að við vorum bara með þetta í okkar höndum,“ sagði Úlfar eftir leikinn. „Þetta er bara svona skítatilfinning.“

Valsmenn höfðu yfirhöndina nánast allan leikinn og náðu mest fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleik áður en liðið náði aftur upp þriggja marka forskoti í þeim síðari.

„Mér fannst slæmi kaflinn hjá okkur kannski vera fulllangur. Hann kemur í hverjum leik, en við vorum kannski bara of lengi að stoppa blæðinguna.“

Valsliðið hafði eins marks forystu þegar örfáar sekúndur voru eftir af leiknum, en Kristófer Máni Jónasson gerðist þá sekur um slæm mistök. Hann slengdi þá fæti í boltann og tafði töku aukakasts gestanna, sem varð til þess að Vardar fékk víti og Kristófer fékk beint rautt spjald. Víti sem gestirnir skoruðu úr og tryggðu sér annað stigið.

„Þetta var bara eitthvað sem gerist alveg í hita leiksins. Það var bara allt í botni. Ég sá þetta ekki alveg nógu vel, en ég held að ég hefði gert nákvæmlega það sama og Máni ef ég hefði verið í hans stöðu. Hann var bara óheppinn að þetta leit svona illa út.“

Þá var Úlfar sammála þjálfara Vals, Óskari Bjarna Óskarssyni, sem sagði að líklega liði of langt á milli þessarra spennuleikja í handbolta til að menn hefðu reynslu af því hvað skyldi gera á síðustu sekúndunum.

„Þetta er ágætispunktur. Í raun og veru er þetta fyrsti leikurinn okkar á þessu tímabili þar sem það er allt undir. Þannig já, kannski reynsluleysi eða eitthvað taktleysi.“

Þrátt fyrir að vera í raun fallnir úr leik í Evrópudeildinni eiga Valsmenn þó einn leik eftir þegar liðið heimsækir Þorstein Leó Gunnarsson og félaga í Porto. Úlfar segir mikilvægt að sýna sínar bestu hliðar í þeim leik þrátt fyrir að ekkert sé undir.

„Ég held að það sé kannski bara aðeins öðruvísi að gíra sig í þann leik núna. Núna snýst þetta bara um að klára verkefnið með stæl og gera þetta faglega. Við erum Valur og eigum að sýna fagmennsku, fyrst og fremst,“ sagði Úlfar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×