Jól

Að­ventan með Lindu Ben: Pakka­skraut sem þú borðar

Aníta Guðlaug Axelsdóttir skrifar
Aðventan með Lindu Ben.
Aðventan með Lindu Ben.

Matreiðsluþættirnir Aðventan með Lindu Ben verða á dagskrá í nóvember og desember á Stöð 2 og Vísi en í þeim býður hún áhorfendum heim og gefur góðar hugmyndir og ráð fyrir aðventuna.

Í þessum þætti sýnir Linda okkur hvernig við skellum í þessar týpísku piparkökur með glassúr sem börnin elska svo heitt, nema með öðru notagildi. 

Hvað er betra en að fá jólapakka? Nú, jólapakka með skrauti sem þú getur borðað.

Klippa: Aðventan með Lindu Ben: Piparkökur og pakkar

Piparkökur

  • 180 g mjúkt smjör
  • 120 g púðursykur
  • 1 ½ dl síróp
  • 1 egg
  • 1 tsk vanilludropar
  • ½ dl mjólk frá Örnu
  • 500 g hveiti
  • 1 msk kanill
  • 2 tsk malað engiferkrydd
  • ½ tsk múskat
  • ½ negull
  • 1 tsk matarsódi
  • ½ tsk salt

1. Setjið smjörið í hrærivél og þeytið þar til orðið ljósara og loftmikið.

2. Bætið púðursykrinum og sírópinu út í, þeytið þar til létt og ljóst.

3. Bætið egginu út í og þeytið. Bætið þá vanilludropunum og mjólkinni saman við og þeytið.

4. Setjið hveiti, kanil, engiferkrydd, múskat, negul, matarsóda og salt í skál og hrærið saman.

5. Bætið hveitinu út í eggjablönduna og hrærið varlega saman.

6. Setjið deigið í plastfilmu og kælið í nokkrar klst inn í ísskáp.

7. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C á undir og yfir hita.

8. Fletjið deigið út þar til það er um það bil ½ cm á þykkt.

9. Skerið það út með smákökuformum og fletjið á smjörpappír.

10. Bakið í u.þ.b. 9-10 mín eða þar til brúnirnar á kökunum eru byrjaðar að brúnast.

Kælið og útbúið glassúr.


Glassúr

  • 300 g flórsykur
  • 2-3 msk mjólk frá Örnu
Ilmurinn úr eldhúsinu hlýtur að hafa verið lokkandi.

Tengdar fréttir

Sörur með karamellu pralíni að hætti Lindu Ben

Jólabaksturinn er rétt handan við hornið og því er kjörið að taka smáforskot á sæluna. Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir deildi uppskrift á vefsíðunni sinni að sörum í nýrri og ljúffengri karamellu útgáfu.

Ómótstæðilegt risarækju hrásalat að hætti Lindu Ben

Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir deildi litríkri og bragðgóðri uppskrift að risarækju hrásalati með mexíkósku ívafi með fylgjendum sínum á Instagram á dögunum. Það tekur aðeins fimmtán mínútur að framkvæma uppskriftina sem er stútfull af hollustu.

Gómsætar og grænar uppskriftir

Veganúar hófst formlega í gærkvöldi í tíunda sinn. Samtök grænkera standa fyrir átakinu sem varir allan janúarmánuð með því markmiði að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti grænkerafæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×