Fótbolti

Ás­laug Munda kemur inn í lands­liðið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur ekki leikið með landsliðinu í eitt og hálft ár.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir hefur ekki leikið með landsliðinu í eitt og hálft ár. vísir/vilhelm

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt hópinn fyrir vináttulandsleikina gegn Kanada og Danmörku.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir kemur inn í hópinn eftir nokkurt hlé. Hún lék síðast með landsliðinu í apríl í fyrra. Áslaug Munda hefur leikið sextán landsleiki.

Hún lék sjö leiki í deild og bikar með Breiðabliki í sumar og hefur leikið vel með skólaliði Harvard í vetur.

Guðný Árnadóttir, leikmaður Kristianstad, er fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Annars er fátt sem kemur á óvart í vali Þorsteins en hópinn má sjá hér fyrir neðan.

Íslenski hópurinn

Íslenski hópurinn sem mætir Kanada og Danmörku.ksí

Ísland mætir Kanada 29. nóvember og Danmörku 2. desember. Báðir leikirnir fara fram á Pinatar á Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×