Fótbolti

Sjáðu mörkin sem tryggðu Víkingi sex­tíu milljónir til við­bótar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Nikolaj Hansen skoraði fyrsta markið en skot hans skoppaði heppilega af varnarmanni.
Nikolaj Hansen skoraði fyrsta markið en skot hans skoppaði heppilega af varnarmanni. vísir / anton brink

Víkingur Reykjavík vann 2-0 gegn Borac Banja Luka í þriðju umferð Sambandsdeildar Evrópu. Nikolaj Hansen skoraði fyrra markið eftir stoðsendingu Karls Friðleifs Gunnarssonar, sem potaði öðru markinu inn skömmu síðar.

Mörkin má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Víkingar hafa nú unnið báða heimaleiki sína og tryggt sér sex stig af níu mögulegum. Hvert jafntefli og hver sigur tryggir Víkingi tugi milljóna (um 60 milljónir fyrir sigur og 20 milljónir fyrir jafntefli).

Þrír leikir eru eftir af deildarkeppninni og Víkingur á góðan séns á að komast áfram. Næsti leikur Víkings er gegn armenska liðinu Noah ytra í fjórðu umferð deildarinnar 28. nóvember næstkomandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×