Innlent

Píratar vilja stofnun til að rann­saka spilling á Ís­landi

Heimir Már Pétursson skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir segir spillingarmál ekki tekin nógu alvarlega á Íslandi. Því vilji Píratar að komið verði á fót stofnun sem rannsaki grun um spillingu.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir segir spillingarmál ekki tekin nógu alvarlega á Íslandi. Því vilji Píratar að komið verði á fót stofnun sem rannsaki grun um spillingu. Vísir/Rax

Þingflokksformaður Pírata segir hreyfinguna stefna á að komast í stjórnarsamstarf án Sjálfstæðisflokksins þótt á brattan hafi verið að sækja í könnunum. Í Samtalinu með Heimi Má segir hún enn nauðsynlegra en áður að taka upp viðræður um aðild að Evrópusambandinu eftir að Donald Trump var endurkjörinn forseti Bandaríkjanna.

Þá telja Píratar þörf á að koma upp sérstakri stofnun til að rannsaka mögulega spillingu í landinu. Fyrirmyndina að slíkri stofnun megi finna víða um Evrópu.

„Að það sé sérstök stofnun sem hefur eftirlit með spillingu. Það mætti alveg vera sameining annarra stofnana sem færu inn í það, til að auðvelda það. Ég held að það sé mikilvægt vegna þess að mér og okkur hefur fundist að spilling sé ekki litin nógu alvarlegum augum á Íslandi. Það er ekki nógu oft rannsakað þegar upp koma tilvik sem benda til spillingar. Mér finnst mikilvægt að það sé að minnsta kosti sérstök eining sem hefur þetta hlutverk,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir í Samtalinu með Heimi Má.

Þáttinn í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Samtalið með Heimi Má - Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

Tengdar fréttir

Píratar stefna á stjórnarsamstarf án Sjálfstæðisflokksins

Þórhildur Sunna Ævardóttir þingflokksformaður Pírata er sannfærð um að hreyfingunni takist að koma fulltrúum á þing þótt á brattan hafi verið að sækja í könnunum að undanförnu. Í Samtalinu með Heimi Má segir hún Pírata stefna að því að komast í ríkisstjórn en muni þó ekki mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×