Formúla 1

Svona verður Ver­stappen heims­meistari í borg syndanna

Aron Guðmundsson skrifar
Ríkjandi heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1, hollendingurinn Max Verstappen er í góðri stöðu fyrir síðustu þrjár keppnishelgar tímabilsins
Ríkjandi heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1, hollendingurinn Max Verstappen er í góðri stöðu fyrir síðustu þrjár keppnishelgar tímabilsins Vísir/Getty

Glæstur sigur þre­falda heims­meistarans Max Ver­stappen, ökuþórs Red Bull Ra­cing, í Brasilíu um síðastliðna helgi, sér til þess að hann getur gull­tryggt sinn fjórða heims­meistara­titil í næstu keppnis­helgi mótaraðarinnar sem fram fer í Las Vegas.

Ver­stappen vann sig upp úr sex­tánda sæti upp í það fyrsta í Brasilíu og hafði þar betur gegn helsta sam­keppnisaðila sínum um heims­meistara­titil ökuþóra, Lando Norris hjá McLaren.

Sigur Ver­stappen sér til þess að hann getur komið í veg fyrir alla mögu­leika Norris á því að verða heims­meistari og þar með tryggja sér sjálfur heims­meistara­titilinn sem yrði hans fjórði á ferlinum og sá fjórði í röð.

Hollendingurinn er nú með sex­tíu og tveggja stiga for­ystu á Norris í stiga­keppni ökuþóra og að há­marki átta­tíu og sex stig eru í pottinum fyrir hvern og einn ökuþór frá þessum tímapunkti til loka tímabils. Tuttugu og sex stig er hægt að fá að há­marki á hverri keppnis­helgi af þeim þremur sem eru eftir að viðbættum að hámarki átta stigum úr sprettkeppni sem er hluti af keppnishelgi Formúlu 1 í Katar.

Til þess að Ver­stappen geti tryggt sér heims­meistara­titilinn í Las Vegas mun hann þurfa að sjá til þess að bilið milli sín og Norris standi í sex­tíu stigum eða meira að keppni lokinni og að því mark­miði eru nokkrar leiðir.

Ver­stappen verður heims­meistari ef hann endar kapp­aksturinn í Las Vegas á undan Norris. Fari svo að báðir ökuþórar myndu enda fyrir utan stigasæti yrði Ver­stappen einnig meistari.

Þá gæti Ver­stappen orðið heims­meistari þrátt fyrir að enda neðar en Norris í keppninni en mætti ekki tapa meira en tveimur stigum á Bretann.

Stigasæti í Formúlu 1

  1. sæti - 25 stig 
  2. sæti - 18 stig
  3. sæti -  15 stig 
  4. sæti - 12 stig
  5. sæti - 10 stig 
  6. sæti - 8 stig 
  7. sæti - 6 stig 
  8. sæti - 4 stig 
  9. sæti - 2 stig
  10. sæti - 1 stig 

*Þá er eitt stig veitt fyrir hraðasta hring í keppni ef umræddur ökuþór sem setur þann tíma endar í einu af efstu tíu sætum keppninnar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×