Fida skipar fjórða sæti hjá Framsóknarflokknum í Suðurkjördæmi. Hún stingur niður penna í tilefni ummæla Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í hlaðvarpinu Ein pæling. Þar sagði Bjarni meðal annars dapurt að horfa upp á börn frá öðrum menningarheimum sem neituðu að taka í höndina á kvenkyns kennurum.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði svo í nýlegri skoðunargrein á Vísi að velflestir Íslendingar hlytu að vera sammála því að mikilvægt væri að vera vakandi gagnvart dapurlegum dæmum um að börn hefðu neitað að taka í hönd á kvenkyns kennurum.
Fida vekur athygli á því hve hættulegt geti verið að festa börn í stereótýpur og búa til sögur sem nýtist í pólitískum tilgangi. Hún rifjar upp aðdraganda komu sinnar til Íslands á sínum tíma.
Barnshugur fullur af ótta
„Þegar ég kom hingað til Íslands sem sextán ára gömul stúlka frá Palestínu, var ég síður en svo upplitsdjörf. Bakgrunnur minn var flókinn: Faðir minn var blaðamaður sem skrifaði gegn óréttlæti og var reglulega handtekinn, stundum haldið í allt að sex mánuði án dóms eða laga, aldrei lengur því aldrei var hann ákærður fyrir neitt. Barnshugur minn var fullur af ótta um að hann væri verið að pynta og ég óttaðist sífellt hvað myndi gerast næst. Að lokum gafst móðir mín upp á erfiðleikunum og flutti með okkur systkinin til Íslands í leit að öruggara lífi.“

Hún segir vel mega vera að hún hafi ekki komið fyrir sem fyrirmyndarbarn á þeim tíma.
„Ég var táningsstúlka, jafn óörugg og þær eru margar á þessum aldri, en ég var líka í ókunnugu landi þar sem ég þekkti engan, kunni ekki tungumálið, skildi ekki menninguna, var óörugg með húðlitinn minn og klæddi mig öðruvísi en jafnaldrar mínir. Þó að mér hafi gengið vel í raungreinum eins og stærðfræði, gekk mér illa í dönsku og íslensku.“
Neyddist til að hætta í skóla við átján ára aldur
Kennarar hafi gert ráð fyrir að erfiðleikarnir tengdust uppruna hennar. Löngu seinna hafi komið í ljós að hún var lesblind og örðugleikarnir því ekki átt neitt skylt við menningu eða uppruna. Til að forðast bókleg för á borð við dönsku fór Fida að læra bifvélavirkjun í Iðnskólanum.
„En þegar ég varð 18 ára neyddi kerfið mig til að hætta í skóla og fara að vinna. Samkvæmt reglum þurfa innflytjendur að sanna framfærslugetu sína þegar þeir teljast fullorðnir, nema foreldrar þeirra hafi háar tekjur – sem er sjaldgæft hjá fólki sem er nýkomið til landsins. Þetta var erfitt, því ég vissi að menntun væri leið mín til betra lífs og þar sem ég gat ekki haldið áfram í skóla fékk ég mikið færri tækifæri til að eignast vini eða taka þátt í félagslífi en og jafnaldrar mínir af íslenskum uppruna. Þannig er staða ungmenna í hópi innflytjenda enn í dag.“
Þær systur hafi unnið hvar sem vinnu var að fá næstu árin svo sem í fiski og bakaríi.
„Vinnuveitendur þurftu að sækja um dvalarleyfi fyrir okkur og það var erfitt að fá umsagnaraðila eða atvinnu. Við gáfumst samt ekki upp. Við unnum hörðum höndum og sóttum kvöldskóla í FB samhliða vinnu, þar sem við reyndum að komast áfram í náminu. Dagarnir voru langir – 10-12 tíma vinnudagar, og síðan kvöldskóli þar sem ég lærði íslensku á sama stigi og íslenskir nemendur. Ég var þreytt og óörugg og ég hef eflaust ekki horft djúpt í augun á kennurunum mínum eða tekið eftir útréttri hönd þeirra á þessum tíma – frekar en í grunnskóla.“
Slapp við dönskuna
Árið 2007 hafi opnast nýjar dyr þegar hún hóf nám í Háskólabrú Keilis. Þar hafi hún fengið undanþágu frá dönskunni til að klára stúdentinn sem hafi markað tímamót í lífi hennar.

„Ég lauk síðan námi í orku- og umhverfisverkfræði frá HÍ og MBA nám við HR, þar sem ég ásamt samnemanda mínum stofnaði GeoSilica. Það sem hófst sem rannsóknarverkefni í háskólanum þróaðist í alvöru fyrirtæki. Nýsköpun kallar á mikla þrautseigju og það er ekkert áhlaupaverkefni fyrir þá sem gefast auðveldlega upp. Orkugeirinn er mjög karllægur og aðeins 2% af nýsköpunarfjármagni rennur til fyrirtækja sem stjórnað er af konum. Þrátt fyrir þetta hefur GeoSilica náð árangri. Í dag er áhersla okkar á Evrópumarkað, þar sem 70% af tekjum okkar koma frá. Það krafðist mikillar vinnu en það hefur borgað sig. Framtíðarmarkmið mitt er að vinna að frekari vexti GeoSilica, en ég legg líka mikla áherslu á að vera virkur þátttakandi í samfélagi fólks af erlendum uppruna og íslensku samfélagi. Ég vil vera fyrirmynd og vekja athygli á mikilvægi þess að hlusta á og virða sjónarmið innflytjenda. Ég verð ævinlega þakklát íslenskum konum sem hafa stutt mig á þessari leið, almenningi sem lét sér ekki standa á sama um mig.“
Henni þyki vænt um að geta fært verðmæti til íslensks samfélags.
Vandamálið gæti verið alls óskylt menningu
„Mér þykir vænt um að geta verið fyrirmynd í augum innflytjendabarna. Mér þykir vænt um að hafa ekki bugast undan kerfi sem gerði mér ekki kleift að vera í námi og eignast vini eins og innfæddir Íslendingar fengu. Ég segi þessa sögu samt ekki til að hreykja mér af verkum mínum, heldur til að minna á að barnið sem ekki vildi taka í hönd kvenkennarans gæti verið að glíma við eitthvað sem er alls óskylt menningu – kannski er eitthvað allt annað sem hvílir á því. Í ár hafa 20 drengir á grunnskólaaldri fengið alþjóðlega vernd hér á landi, utan Úkraínu. Þarf það að vera svo flókið að nálgast barnið sem neitaði að taka í höndina á kennaranum og kanna hvort eitthvað ami að, frekar en að gera þessa hegðun að pólitískri áróðurssögu?“

Betra sé að spyrja börnin hvort eitthvað ami að og leita leiða til að þau nái að þroska áhugamál sín og styrkleika í þágu samfélagsins.
„Hver veit nema að barnið sem ekki vildi taka í höndina á kennara sínum muni stofna verðmætt fyrirtæki síðar eða verði jafnvel næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? Barn sem vex upp, fær tækifæri til að blómstra, ann samfélaginu sínu og leggur því eitthvað nýtt til.“