Skoðun

Sögur Hannesar Hólm­steins

Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Þann 22. okt. s.l. svaraði Hannes Hólmsteinn Gissurarson grein minni um „Sögur ísraelska hermannsins“ sem birtist á visir.is 19. október s.l.. Hannes segir að sér sé ljúft og skylt að svara grein minni. Svar Hannesar hefur þó þann galla að hann setur fram svo margar rangfærslur að það tekur pláss og tíma að svara honum og leiðrétta það sem hann þykist vera að leiðrétta í minni grein.

Greinin sem ég birti hér er stutt en lengri og ítarlegi útgáfu er að finna á fésbókinni

Svar mitt þar verður því í lengra lagi og vona ég að lesendur fyrirgefi mér, en eins og máltækið segir „Hafa skal það sem sannarar reynist.“

Hver er Hjálmtýr Heiðdal?

Það er umhugsunarvert hvernig Hannes Hólmsteinn bregst við grein minni sem gekk út á að leiðrétta rangfærslur ísraelska hermannsins Ely Lassman um Ísrael og Palestínu. Eins og hjá fleirum sem hvorki hafa haldföst rök né réttlátan málstað velur hann að ráðast á manninn. Hver er Hjálmtýr Heiðdal spyr hann í feitletraðri fyrirsögn? Hannes segir mig m.a. hata gyðinga, vestræna menningu og vera „minnipokamann“ - hvað sem það svo þýðir í meðförum prófessorsins fyrrverandi.

Þennan dóm fæ ég frá manni sem er fastur í hugmyndum kalda stríðsins og hugmyndafræðingur nýfrjálshyggjunnar sem hefur tröllriðið þjóðfélögum til hins verra. HHG.

Hannes og aðrir stuðningsmenn þjóðarmorðs Ísraels á Gaza hafa ekki góðan málstað að verja. Þeir reyna því að gera lítið úr orðum mínum, ég sé ómarktækur því ég hafi stutt frelsibaráttu þjóða í Suða-austur Asíu sem róttæklingur á yngri árum, löngu fyrir tíma internetsins. Í dag er erfiðara að fela óhæfuverk eins og t.d. þjóðarmorð Ísraela á palestínsku þjóðinni, en Hannes er einn þeirra sem verja framferði Ísraela.

Fræðimaðurinn

Hannes, sem er af sumum talinn vera fræðimaður, virðist halda að hann geti slengt fram allrahanda rangfærslum til að styðja sinn málstað, rangfærslum sem auðvelt er að hrekja. Það er furðulegt að hann hafi verið við kennslu í Háskóla Íslands í áraraðir, maður sem lætur pólitískar skoðanir sínar hafa yfirhöndina og lætur staðreyndir lönd og leið.

Hannes Hólmsteinn fer oft mikinn á síðum blaða og á netinu. Hann á sér lítinn hóp aðdáenda, en flestir sem tjá sig um umsvif Hannesar hafa á honum skömm sem boðbera afturhaldshugmynda sem víða gætir í íslensku samfélagi.

Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×