Innlent

Skor­dýr í pastaskrúfum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Pakkningar sem ætti að skila eru með best fyrir dagsetningu 11.06.2026.
Pakkningar sem ætti að skila eru með best fyrir dagsetningu 11.06.2026. Aðsend

Krónan hefur hafið innköllun og tekið úr sölu pastaskrúfu sem seldar eru undir vörumerkinu First Price eftir að skordýr fannst í innihaldi einnar pakkningar frá framleiðandanum. Ekki kemur fram í tilkynningu hvaða skordýr það var.

Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða 500 gramma pakkningar eins og meðfylgjandi mynd sýnir með lotunúmerinu (best fyrir dagsetningu) 11.06.2026.

Viðskiptavinir sem keypt hafa viðkomandi vöru með sama lotunúmeri eru vinsamlegast beðnir að skila henni í næstu verslun Krónunnar gegn endurgreiðslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×