Fyrir tæpri viku síðan var greint frá því í fréttum að umfangsmikill leki hefði orðið í húsi í Maríubakka. Herbergi í húsinu fylltist af vatni upp að hurðarhúni. Nokkrum dögum síðar birti Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu mynd af lekanum. Eins og má sjá að ofan var umfangsmikill líklega rétta orðið til að lýsa honum.

Lekinn átti sér stað í lagnarými hússins en vatnið lak svo út og í geymslur við hlið lagnarýmisins. Í samtali við íbúa í húsinu kom fram að lekinn hafi orðið snemma um morguninn.
„Ég var í samskiptum við verktakana og hafði hleypt þeim inn um morguninn. Kem niður um tíuleytið og mæti þá öðrum þeirra að moka vatni út úr kjallaranum og þá var búið að ræsa út slökkviliðið til að dæla út. Slökkviliðið lauk sér svo af um hádegið,“ segir íbúinn sem vildi ekki láta nafns síns getið.
Sjá einnig: Herbergi fylltist af vatni upp að hurðarhúni
Hún segir að enn sé verið að meta hversu mikið tjón varð við lekann en hana gruni að tjónið verði töluvert.

„Í fljótu bragði eru allar hurðar í þessum hluta hússins ónýtar, veggir og gólf eru illa farin. Það flæddi inn á stigaganginn og ég er bara að bíða og sjá hvernig að teppið þar kemur undan þurrkun. Ég er í samskiptum við tryggingafélög, bæði húsfélagsins og Veitna að sjá hvort og hversu mikið af þessu tjóni verður bætt,“ segir hún.
Það hafi flætt inn í flestar geymslur í kjallaranum og orðið talsvert tjón þar.
Annar lekinn á árinu
Hún segir þetta í annað sinn á sex mánuðum sem flæðir inn í kjallarann þegar lögn gefur sig.
„Þann 11. maí síðastliðinn fór heitavatnsinntakið inn í húsið í kjölfar þess að stór leki varð við Breiðholtsskóla. Þegar að þrýstingi var hleypt aftur á kerfið gaf lögnin sig við húsvegginn og flæddi inn.“

Hún segir Veitur ekki hafa bætt það tjón og húsfélagstrygging bæti bara fyrir tjón af vegum vatns innanhúss. Þá hafi teppið á stigaganginum orðið verst úti.
Samkvæmt upplýsingum frá Veitum geta þau ekki svarað því hvort þau beri ábyrgð á tjóninu. Þá segir enn fremur að atvikin tvö séu algjörlega óskyld.
„Almennt þegar tjón verða á lögnum Veitna er best er að tilkynna það beint til VÍS sem sér alfarið um tryggingar fyrir okkur og þar eru málin unnin eins hratt og mögulegt er. Að öðru leyti getum við ekki veitt upplýsingar um einstaka viðskiptavini.“
