Fótbolti

Ás­dís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði sitt þriðja mark á tímabilinu í dag.
Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði sitt þriðja mark á tímabilinu í dag. Lillestrøm

Í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta vann Lillestrøm 2-5 sigur á Lyn. Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði fyrsta mark þeirra gulu og svörtu.

Ásdís Karen lék allan leikinn fyrir Lillestrøm og hún jafnaði í 1-1 á 33. mínútu, þremur mínútum eftir að Lyn náði forystunni. Eftir mark Ásdísar Karenar gekk Lillestrøm á lagið og vann á endanum þriggja marka sigur, 2-5.

Þetta var þriðji sigur Lillestrøm í röð. Liðið er í 4. sæti deildarinnar með 38 stig, tveimur stigum á eftir Rosenborg sem laut í lægra haldi fyrir Rosenborg, 2-1. Selma Sól Magnúsdóttir var í byrjunarliði Rosenborg en var tekin af velli eftir rúman klukkutíma.

Í þýsku úrvalsdeildinni unnu Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur hennar í Bayer Leverkusen 0-2 sigur á Essen á útivelli. Karólína var í byrjunarliði Leverkusen og lék fyrstu 71 mínútu leiksins.

Leverkusen er á toppi deildarinnar með sjö stig eftir þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×