Fjórar stærstu matvörukeðjur landsins lækkuðu verð sín frá ágústbyrjun og til ágústloka á þeim vörum sem voru til skoðunar í verðlagseftirliti ASÍ. Bónus lækkaði verð á 19 prósent vara, Krónan og Nettó um níu prósent og Hagkaup um þrjú prósent. Ekki er um afmarkaða lækkun að ræða samkvæmt tilkynningu. Vörur í öllum flokkum allra fjögurra verslana hafi verið lækkaðar. Verð voru skoðuð dagana fram að 11. ágúst og dagana fram að 29. ágúst.
Í tilkynningu ASÍ um verðlagseftirlitið segir að þó svo að Bónus hafi lækkað verð á flestum vörum hafi meðalverð þar lækkað minnst af þessum fjórum verslunum, eða um 0,3. Nettó hefur lækkað mest, eða um 0,8. Þó er bent á að á tímabilinu hafi heilsudagar verslunarkeðjunnar farið fram.
Í tilkynningu ASÍ segir að þetta skýrist að hluta af krónu-fyrir-krónu verðstríði við Prís í til dæmis mjólkur- og kjötvörum. Prís opnaði í miðjum síðasta mánuði og kemur fram að frá þeim tíma og til 5. september hafi verð þar lækkað á 264 vörum og hækkað á sex vörum. Prís er því enn ódýrasta matvöruverslunin í samanburði verðlagseftirlitsins.
Fjórða hver vara fimm prósentum ódýrari
Af þeim 340 vörum sem finna mátti í Bónus, Krónunni og Prís þann 5. september voru 97 prósent á lægsta verðinu í Prís. Í Bónus voru sjö prósent á lægsta verðinu og í Krónunni ein vara – Kjarnafæðis-bratwurst sem kostaði 612 krónur, eins og í Bónus. Í Prís kostaði varan 613 krónur og í Nettó 614 krónur.
ASÍ segir muninn þó ekki alltaf hafa verið svo tæpan. Fjórða hver vara hafi verið yfir fimm prósentum ódýrari í Prís en í Bónus og tíunda hver vara tíu prósentum ódýrari. Ein var var á hálfvirði miðað við Bónus, það var Goða skinkubunki.
Í tilkynningu ASÍ til verðlagseftirlitsins segir að verðlag á matvöru hafi lækkað um 0,5 prósent á milli júlí og ágúst.