Eftir sigur San Marínó á Liechtenstein í gær er Ísland eina liðið í Evrópu sem enn hefur aldrei unnið leik í Þjóðadeildinni, á þremur leiktíðum. Samt hefur keppnin reynst Íslandi dýrmæt.
Fyrstu tvö tímabilin var Ísland í A-deild, með allra bestu liðum álfunnar, en nú leikur liðið annað árið í röð í B-deild og gæti sótt sinn fyrsta sigur gegn Svartfjallalandi á Laugardalsvelli í kvöld.
Að þessu sinni hefur Þjóðadeildin áhrif á leiðina á HM 2026 í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, en þó ekki eins mikil áhrif og á síðustu tvö Evrópumót. Ísland hefur einmitt, vegna Þjóðadeildarinnar, komist í umspil fyrir síðustu tvö EM en þó ekki á lokamótið.
Upp í A-deild eða fall í C-deild?
En Þjóðadeildin er líka sérkeppni, þó að hún njóti ekki sömu virðingar og HM og EM. Evrópumeistarar Spánar eru einnig ríkjandi Þjóðadeildarmeistarar eftir sigur gegn Hollandi í úrslitaleik í fyrrasumar.

Leikið er í fjórum deildum (16 lið í A, 16 í B, 16 í C og 6 lið í D-deild) eftir styrkleika liða og geta þau svo unnið sig upp eða fallið á milli ára. Ísland er í riðli fjögur í B-deildinni ásamt Svartfjallalandi, Tyrklandi og Wales.
- Efsta liðið í riðlinum kemst upp í A-deild.
- Næstefsta liðið fer í umspil við 3. sætis lið úr A-deild, um sæti í A-deild.
- Næstneðsta liðið fer í umspil við 2. sætis lið úr C-deild, um sæti í B-deild.
- Neðsta liðið fellur niður í C-deild.
Aðeins liðin í A-deild geta unnið keppnina
Það er því ljóst að tvö lið úr riðli Íslands fara í umspil í mars á næsta ári og spurning hvernig það myndi henta varðandi fyrirhugaðar breytingar á Laugardalsvelli, þar sem leggja á blandað gras.
Það eru hins vegar aðeins liðin í A-deild sem geta orðið Þjóðadeildarmeistarar hverju sinni. Tvö efstu lið hvers riðils í A-deild komast í átta liða úrslit í mars, og undanúrslit og úrslit verða svo í júní næsta sumar.
Sigur í riðlinum varaleið á HM
Varðandi varaleiðina á HM þá felst hún í því að Ísland vinni sinn riðil. Takist það, sem yrði mikið afrek, ætti liðið góða möguleika á að fá sæti í umspilinu um sæti á HM, þyrfti liðið á því að halda. Aðeins sigurlið riðla í Þjóðadeildinni geta fengið sæti í umspilinu.
Dregið verður í undankeppni HM eftir að riðlakeppni Þjóðadeildarinnar lýkur 19. nóvember. Staða Íslands á heimslista ræður því í hvaða styrkleikaflokki liðið verður í drættinum, og því skiptir hvert stig máli í Þjóðadeildinni í haust.
Í undankeppni HM á næsta ári verður svo spilað í tólf riðlum og komast sigurliðin beint á HM. Liðin tólf sem enda í 2. sæti fara í umspil, ásamt fjórum bestu liðunum sem vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni en enduðu ekki í tveimur efstu sætum síns undanriðils. Ísland gæti orðið ein þessara fjögurra þjóða ef allt fer á besta veg núna í haust.
Hefur líka áhrif á EM 2028
En það gæti líka reynst afar dýrmætt fyrir Ísland að halda sér í B-deild, eða að komast upp í A-deild, fyrir næstu leiktíð í Þjóðadeildinni því þá mun keppnin hafa áhrif á undankeppni Evrópumótsins 2028. Um þetta má þó deila. Georgía komst til að mynda inn á síðasta EM með því að vinna sinn riðil í C-deild, og svo umspilsleiki við Lúxemborg og Grikkland, á meðan að umspilsleikir Íslands, sem var í B-deild, voru við Ísrael og Úkraínu.