Sport

Dag­skráin í dag: Víkingar verja heiður Ís­lands og stórleikur á Hlíðar­enda

Sindri Sverrisson skrifar
Ari Sigurpálsson og félagar í Víkingi þurfa sigur gegn Flora í Eistlandi í dag.
Ari Sigurpálsson og félagar í Víkingi þurfa sigur gegn Flora í Eistlandi í dag. Vísir/Diego

Það er nóg um að vera á sportstöðum Stöðvar 2 í dag og í kvöld og beinu útsendingarnar byrja nokkuð snemma.

Stórleikir á Stöð 2 Sport

Íslands- og bikarmeistarar Víkings eru einir íslenskra karlaliða í fótbolta eftir í Evrópukeppni í ár. Þeir spila seinni leik sinn við Flora í Tallinn í dag klukkan 16, eftir 1-1 jafntefli í Víkinni í síðustu viku. Ekkert nema sigur kemur því til greina fyrir Víkinga, hvort sem það verður í venjulegum leiktíma, framlengingu eða vítaspyrnukeppni.

Að leiknum loknum tekur við stórleikur Vals og Breiðabliks í Bestu deild karla, sem hefst klukkan 19:15, en þetta eru liðin sem veita Víkingum keppni um Íslandsmeistaratitilinn.

Þrír leikir í Bestu deild kvenna

Besta deild kvenna er á þremur rásum í dag og dagskráin hefst með upphitunarþætti á Stöð 2 Sport 5 klukkan 17. Þar hefst svo í kjölfarið leikur Þórs/KA og Stjörnunnar, en Stjörnukonur þurfa nauðsynlega á stigum að halda til þess að taka þátt í efri hluta deildarinnar þegar henni verður skipt upp eftir tvær umferðir.

Keflavík og FH mætast á BD 2 klukkan 18 og svo mætast Víkingur og Tindastóll á BD klukkan 19:15.

Vodafone Sport

Bein útsending frá Opna skoska mótinu í golfi, sem er hluti af LPGA mótaröðinni, hefst klukkan 13 á Vodafone Sport. Þar verður svo leikur New York Mets og Oakland Athletics klukkan 17, í bandaríska hafnaboltanum, og US Amateur Open í golfi klukkan 21.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×