Gallagher samþykkir að fara til Atlético Madrid Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 5. ágúst 2024 20:00 Conor Gallagher er á leið til Spánar. Dan Mullan/Getty Images Enski landsliðsmaðurinn Conor Gallagher er á leið til spænska úrvalsdeildarfélagsins Atlético Madrid frá Chelsea.
Chelsea hafði áður samþykkt 33 milljón punda tilboð Madrídarliðsins í Gallagher, en talið var að launakröfur miðjumannsins gætu fælt Atlético Madrid frá því að klára kaupin. Gallagher tjáði þó forráðamönnum Atlético Madrid í gær, sunnudag, að hann væri tilbúinn að færa sig um set. Búist er við því að Gallagher fljúgi til Madrídar og gangist undir læknisskoðun á næstu dögum áður en hann skrifar að lokum undir samning við félagið. Áður hafði Gallagher neitað nýju samningstilboði frá Chelsea í tvígang. Þessi 24 ára gamli miðjumaður hefur verið hjá félaginu frá árinu 2008, en Chelsea bauð honum að skrifa undir nýjan tveggja ára samning með möguleika á árs framlengingu. Alls hefur Gallagher leikið 95 leiki fyrir Chelsea í öllum keppnum þar sem hann hefur skorað tíu mörk og lagt upp önnur tíu fyrir liðsfélaga sína. Þá á hann einnig að baki 18 leiki fyrir enska landsliðið.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Sjá meira