Ekki kemst hjólreiðafólk allra sinna ferða á þar til gerðum stígum og þurfa ökutæki og reiðhjól í einhverjum tilfellum að deila götum og vegum landsins. Því er ekki úr vegi að skerpa aðeins á umferðalögum nr.77/2019 sem tóku gildi þann 1. janúar 2020.
Bylgjan, Vísir, Stöð 2 og Samgöngustofa standa fyrir umferðarátaki í sumar og á vef Samgöngustofu er að finna upplýsingar og fróðleik. Þar er meðal annars búið að taka saman helstu atriði laganna sem snúa að hjólreiðum.
Hliðarbil að lágmarki 1.5 metrar
Hverskonar framúrakstur skapar alltaf ákveðna hættu og í lögunum kemur fram að þegar ekið er fram úr reiðhjóli eða léttu bifhjóli skal hliðarbil vera að lágmarki 1.5 metrar.
Hjólandi haldi sig til hægri á stærri vegum
Hjólreiðamaður á almennt að halda sig hægra megin á þeirri akrein sem lengst er til hægri. Þó er óhætt að hjóla á miðri akrein á vegi þar sem hámarkshraði er ekki meiri en 30 km. á klst. Þá er hjólreiðamönnum gert að sýna sérstaka aðgát við vegamót og þar sem akbraut og stígar skerast.
Hjólandi hafa forgang á hjólarein
Í borgum víða erlendis þar sem hjólreiðar eru algengari en hér Þó eru komnar hjólareinar víða meðfram akbrautum og þá þurfa ökumenn að vera vakandi. Ökumaður sem ætlar að beygja þvert á hjólarein skal veita umferð hjólreiðamanna á reininni forgang.
Hjólandi gefi merki
Og ekki eru það einungis hjólandi og akandi sem deila þurfa vegum heldur hjólandi og gangandi einnig. Þá kveða lögin svo á um að hjólreiðafólk á gangstétt, göngustíg eða göngugötu skal víkja fyrir gangandi vegfarendum. Gæta skal ýtrustu varkárni og ekki hjóla hraðar en svo að hjólandi geti vikið úr vegi fyrir gangandi vegfarendum sem eiga leið um. Hjólreiðafólk skuli gefa hljóðmerki þegar það nálgast gangandi vegfarendur ef ætla má að þeirra verði ekki vart. Þar má einnig bæta við að sérstakar gætur þarf að hafa á ef gangandi vegfarandi er með hund í bandi.
Bylgjan, Vísir, Stöð 2 og Samgöngustofa standa nú fyrir átaki um að sýna ábyrgð í umferðinni. Góður hópur samstarfsaðila leggur átakinu lið; F.Í.B, Hopp, Hreyfill, Höldur Bílaleiga Akureyrar, Sniglar - Bifhjólasamtök lýðveldisins og Steypustöðin. Tökum höndum saman og sýnum ábyrgð í umferðinni alla daga.