Styrmir Erlendsson vinur hans og meðeigandi Brutta Golf náði afrekinu á filmu og er það aðgengilegt á TikTok.
„Ég hafði verið í smá kennslu hjá hinum eina sanna Birgi Leifi daginn áður og hann var að reyna að sýna mér hvernig líkamsstaðan mín ætti að vera með því að taka mig upp á símann frá þessu sjónarhorni,“ segir Ágúst og heldur áfram.

„Við félagarnir spiluðum 36 holur þennan dag og seinni 18 voru ekki að ganga neitt rosalega vel hjá mér. Ég var orðinn tæpur á golfkúlum og var einmitt að leita af golfkúlunni minni úti skógi þegar ég finn kúluna sem ég nota á næstu holu sem ég fer holu í höggi á.“
Þetta gerist á þessari holu
Þarna segist Ágúst hafa verið orðinn vel pirraður á því hversu illa gekk.
„Ég ákvað að láta Styrmi vin minn taka mig upp frá sama sjónarhorni og Birgir Leifur var búinn að taka mig upp daginn áður til þess að reyna sjá hvers vegna flest högg voru að enda úti í runna. Á meðan við stöndum allir á teig og bíðum eftir að hollið á undan okkur klárar þá spyr Styrmir hvort að einhver af okkur hafi farið holu í höggi eða orðið vitni að því, allir svara neitandi og þá segir Styrmir, það gerist á þessari holu.“
Hér að neðan má sjá þetta ótrúlega atvik og myndband af því.
Watch on TikTok