Einn glæsilegasti golfvöllur landsins í Kiðjabergi Golfvöllur vikunnar 3. júlí 2024 10:00 Náttúrufegurðin er allt um kring á Kiðjabergi. Yfir sextíu golfvelli er að finna á Íslandi. Í sumar ætlum við að kynna okkur nokkra þeirra sem spennandi væri að prófa í sumar. Golfvöllur vikunnar er Kiðjaberg.
Það sem aðgreinir Kiðjabergsvöll frá mörgum golfvöllum er hið mikla útsýni sem kylfingar njóta meðan á hring stendur. Golfvöllurinn liggur að hluta til meðfram Hvítá og Hestvatni sem er ávallt gaman að líta til á meðan leik stendur. Hægt er að sjá Ingólfsfjall úr fjarska og síðan er Hestfjall handan við hornið. Það er alveg hægt að gleyma sér í náttúrufegurðinni. Golfvöllurinn liggur að hluta til meðfram Hvítá og Hestvatni Golfklúbburinn er einnig með stærsta flota af golfbílum til leigu en mörgum finnst þægilegra að keyra völlinn heldur en að ganga. Glæsilegt 250 metra æfingasvæði er í Kiðjabergi sem allir, óháð golfhæfileikum geta nýtt sér. Einnig eru tvær æfingaflatir til að æfa púttin, vippin og glompuhöggin. Ennfremur er æfingavöllur sem hægt er að spila að endurgjaldslausu. Öll flóra kylfinga sækir völlinn heim. Meðlimir eru mjög duglegir að spila völlinn og einnig gestir, bæðir innlendir og erlendir. Golfvöllurinn hefur ávallt verið vel sóttur af utanaðkomandi kylfingum. Ennfremur er Kiðjabergsvöllur mjög vinsæll meðal fyrirtækja sem vilja halda boðsmót en völlurinn er talinn frábær skemmtun og aðstaða til fyrirmyndar. Flott klúbbhús með búningsklefum og glæsilegri veitingasölu að nafni Kaffi Kið þar sem Rakel, vertinn á staðnum, getur töfrað hvaða rétt sem er. Það hefur einnig verið mjög mikil aukning meðal erlendra ferðamanna sem er ánægjulegt. Gaman að heyra þeirra upplifun af Kiðjabergsvelli sem er undantekningarlaust alltaf jákvæð og sýnir sig í fjölda bókana bæði hjá erlendum golfferðaskrifstofum og á eigin vegum.
Golf Golfvellir Heilsa Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira