Úkraína lenti undir en sótti sinn fyrsta sigur í seinni hálfleik 21. júní 2024 15:00 Roman Yaremchuk reyndist hetja Úkraínu þegar hann setti sigurmarkið á 80. mínútu. Lars Baron/Getty Images Úkraína lenti undir á móti Slóvakíu en sótti 2-1 sigur í seinni hálfleik. Roman Yaremchuk setti sigurmarkið eftir glæsilega móttöku í teignum. Slóvakía var við völd í upphafi og tók forystuna snemma á 17. mínútu. Snöggt innkast og sofandaháttur í úkraínsku vörninni skilaði sér í skallamarki hjá Ivani Schranz eftir flotta fyrirgjöf á fjærstöngina frá Lukasi Haraslin. Úkraínumenn lifnuðu við eftir markið og áttu skot í stöng en tókst ekki að jafna áður en fyrri hálfleikur var allur. En snemma í seinni hálfleik skoraði Úkraínumaðurinn Mykola Shaparenko eftir fyrirgjöf frá Oleksandr Zinchenko. Þegar líða tók á voru Úkraínumenn líklegri aðilinn til að taka forystuna og gerðu það loks á 80. mínútu. Roman Yaremchuk tók þar listilega vel við fyrirgjöf frá Mykola Shaparenko og laumaði boltanum framhjá markmanni Slóvaka. Slóvakía sótti hart undir lokin í leit að jöfnunarmarki en Úkraína hélt út og fagnaði sínum fyrstu þremur stigum á mótinu. EM 2024 í Þýskalandi
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti