Conceição hetja Portúgals Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. júní 2024 21:05 Sigurmarkinu fagnað. Boris Streubel/Getty Images Portúgal marði Tékkland 2-1 þökk sé dramatísku sigurmarki Francisco Conceição í blálokin. Portúgal því komið með þrjú stig í F-riðli eins og Tyrkland. Síðari leikur dagsins var ekki jafn fjörugur og sá fyrri en eftir markalausan fyrri hálfleik lifnaði yfir mannskapnum í þeim síðari. Lukáš Provod kom Tékklandi yfir á 62. mínútu með frábæru skoti eftir undirbúning Vladimír Coufal. Aðeins sjö mínútum síðar jafnaði Portúgal metin en það mark var heldur klaufalegt fyrir Tékkana. https://t.co/MGe1SV8Rcp pic.twitter.com/cTNTvenMH6— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) June 18, 2024 Jindřich Staněk, markvörður Tékklands, mokaði þá fyrirgjöf frá vinstri í fæturnar á Robin Hranáč og þaðan fór boltinn í netið. Staðan orðin 1-1 og þannig var hún fram í uppbótartíma. Diogo Jota hélt vissulega að hann hefði komið Portúgal yfir þegar þrjár mínútur voru til loka venjulegs leiktíma en markið dæmt af vegna rangstöðu. Sigurmarkið kom hins vegar þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Francisco Conceição wins it late for Portugal 🇵🇹#EURO2024 | #PORCZE pic.twitter.com/YbM4fAfT0J— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) June 18, 2024 Það gerði varamaðurinn Francisco Conceição eftir vægast sagt ömurlegan varnarleik Tékklands. Þeim mistókst að hreinsa slaka fyrirgjöf frá vinstri og Conceição nýtti sér það. Hann hafði aðeins verið inn á vellinum í tvær mínútur.Hann fagnaði markinu með því að rífa sig úr að ofan og fékk gult spjald að launum. Þegar fyrstu umferð í F-riðli er lokið eru Portúgal og Tyrkland með þrjú stig á meðan Tékkland og Georgía eru án stiga. EM 2024 í Þýskalandi Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti