„Já, við hér í Hljóðfærahúsinu vorum að fá í hús glæsilegan „Custom shop Fender Telecaster“ sem er þakin íslenskum frímerkjum. Forstjóri Fender, Andy Mooney, er sem sagt mikill frímerkjasafnari og hann gerði nokkra gítara í þessum stíl, það er með frímerkjum nokkurra landa,“ segir Arnar Þór.

Arnar og Guðni Finnsson starfsmaður Hljóðfærahússins, eru að vonum spenntir að fá þetta einstaka hljóðfæri í hendur en að sögn Arnars er Guðni sérlegur sendiherra Fender á Íslandi. „Sá gullfallegi bassaleikari.“
Aðeins 50 gítarar af þessu tagi eru til og gaman að sá sem er með íslensku frímerkjunum hafi ratað hingað. Arnar Þór segir að auðvitað hafi þeir keypt hann inn.

„Já, þetta er nýr gítar. Við vorum að trilla honum inn í búðina. Þetta er gæluverkefni forstjóra Fender, Mooney er merkilegur maður. Hann er frímerkjasafnari og gerði sem sagt þessa útgáfu. Já, hann er mikið nörd. Aldeilis. Ég hef því miður ekki hitt manninn en þetta virðist vera skemmtileg týpa.“
Arnar Þór er ekki frá því að þarna megi finna sjaldgæf frímerki. Hann segir þetta verkefni Mooney ekki fara hátt og hann hafi aðeins fundið einn gítar á netinu en sá er í Singapore.
Arnar segir hljóðfærið dásamalegt og hann vonar að með tíð og tíma muni einhver íslenskur safnari eignast gripinn en hann er falur fyrir rúmar 800 þúsund krónur.
