Velmegun Íslands er háð alþjóðaöryggi Smári McCarthy skrifar 4. júní 2024 12:00 Forsendur íslenskrar velmegunar eru í hættu, en ekki (bara) af þeim ástæðum sem fólki kemur fyrst í hug. Staðan er sú að öll sú velmegun sem við búum við í dag varð til í kjölfar seinni heimsstyrjaldar, en við höfum vanist því að hugsa um ýmsa hvalreka sem hafa ýtt Íslandi frá því að vera fátækt örríki á norðurhjara í að vera öflugt þekkingar- og lýðræðissamfélag með lífskjör í heimsklassa. Til dæmis talar fólk um Marshallaðstoðina, síldina, orkuiðnaðinn og álið, ferðaþjónustuna, kvikmyndaiðnaðinn, og fjöldann allan af tæknifyrirtækjum í heilbrigðis- og lyfjageiranum, tölvugeiranum. Sjaldnar er þó talað um hvað gerir þetta allt saman mögulegt. Frá enda seinni heimstyrjaldar hefur svokallaður “glóbalismi” – alþjóðahyggja – verið við lýði. Sumir halda að umrædd alþjóðahyggja sé einhverskonar illt samsæri rekið í þágu auðmanna, en raunin er að alþjóðahyggjan er fyrst og fremst pólitískt samkomulag um nokkur atriði, einkum að ríki geti stundað sífellt frjálsari viðskipti sín á milli, og að tryggja skuli frið á heimshöfunum svo að vörurnar tengt þeim viðskiptum geti farið með ódýrum og öruggum hætti milli staða. Í krafti þessa fyrirkomulags fara tæplega 119 þúsund farskip um heim allan og flytja rúmlega 11 milljarða tonna af vörum árlega, á ótrúlega lágu verði miðað við umfang, og að öllu jöfnu gengur þetta merkilega skammlaust fyrir sig. En spyrja má: Hver á að tryggja þann frið á heimshöfunum? Síðustu 79 árin hafa Bandaríkin einkum séð um það, með fulltingi ýmissa annarra landa, með því að beita stærsta sjóher heims til að tryggja almennt öryggi í far- og farmflutningum. Þegar víðtæk keðja skipa kemst heilu og höldnu með bíla frá Japan og Kóreu, síma og raftæki frá Kína og Taívan, olíuvörur frá miðausturlöndum eða norðursjó, og allskonar matvöru alls staðar að í heiminum til Íslands og annarra landa, þrátt fyrir deilur og stríð milli ríkja, hryðjuverkahópa, sjóræningja og svo framvegis, þá er það þeim verndarhjúpi að þakka að miklu leyti. Það gleymist oft að öldum saman voru skip á úthöfunum tíð fórnarlömb árása og sjórána. Og meðan það vissulega gerist enn, þá er núverandi öryggisumhverfi gjörólíkt því sem áður var. Vandamálið er að þessi verndarhjúpur byggir að miklu leyti á því að flotinn sé til staðar til að vernda skipin. Ef flotinn er ekki til staðar, þá er verndarhjúpurinn ekki til staðar, og þá verða viðskiptin fljótt miklu dýrari og flóknari. Við fengum smjörþef af því í vetur, þegar Húta-liðar í Jemen tóku að skjóta eldflaugum að flutningaskipum, með þeim afleiðingum að mörg fyrirtæki ákváðu að beina skipunum suður fyrir Afríku frekar en að taka þá áhættu á að fara um Rauða hafið og Suez-skurðinn. Þetta lengir flutningstíma, sem leiðir af sér samdrátt á heildarmagni flutninga sem geta átt sér stað með sama farskipaflota. Þetta mun líklegast leiða af sér samdrátt á heildarflutningum og aukningu á eftirspurn eftir flutningsplássi, sem leiðir til hækkaðs flutningsverðs. Þá mun aukin áhætta í skipaflutningum hækka kostnað trygginga í leiðinni. Undanfarna áratugi hafa bandarísk stjórnmál í sífellt meira mæli leitað inn á við, og meðal afleiðinga þess er þverrandi áhugi Bandarískra yfirvalda á að kosta risavaxinn flota til að tryggja öryggi á heimshöfunum, og þar með niðurgreiða stóran hluta af vöruviðskiptum heimsins. Blanda af aukinni efnahagslegri þjóðernishyggju þar, stríðsþreytu eftir misheppnaðan stríðsrekstur í Írak og Afghanistan, og aukinni áherslu á að efla framleiðslu innanlands, svo ekki sé talað um uppgang Trumpisma, hefur gert það að verkum að flotar Bandaríkjanna og annarra landa hafa minnkað um meira en helming síðustu þrjá áratugina, og verkefni þeirra hafa breyst töluvert um leið. Það er ekki útséð ennþá hvort þetta komi til með að leiða af sér afturhvarf til fyrri tíma, eða þá að hvaða leyti, en það væri gagnlegt fyrir Ísland sem ríki sem byggir tilveru sína á frjálsum viðskiptum og öruggum farmflutningum að gera sér grein fyrir því að fjarað getur hratt undan velmeguninni ef verndarhjúpurinn bregst. Hvernig nákvæmlega íslenska ríkið ætti að bregðast við þeirri hættu er opin spurning. Ágæt byrjun væri að kortleggja að hversu miklu leyti innflutningur til Íslands og útflutningur frá Íslandi fer að jafnaði um mismunandi svæði og búa til áhættumatslíkan fyrir svæðin. Í kjölfarið mætti byrja að efla íslenska framleiðslu til að skipta út innflutningi (e. import substitution) á þeim sviðum þar sem það er mögulegt og efnahagslega fýsilegt. Þá mættu stjórnvöld beita sér fyrir því á alþjóðagrundvelli að vesturlönd eða jafnvel öll ríki taki sig saman um að halda verndarhjúpnum gangandi. Það gæti auðvitað kallað á að Ísland leggi eitthvað til málanna líka. Ísland hefur áratugum saman státað sig af því að vera friðsöm þjóð, og við megum alveg vera stolt af því að vera friðelskandi land sem hefur beitt sér fyrir friði. En við megum aldrei gleyma því að friðurinn er tryggður með alþjóðlegu öryggissamstarfi. Öryggi okkar, sem við byggjum tilveru okkar á, er grundvallað á niðurgreiðslu annarra ríkja, aðallega Bandaríkjanna. Það öryggi er háð pólitískum ákvörðunum sem við höfum lítið sem ekkert um að segja. Ef hætta er á að það geti breyst þurfum við að bregðast við og verja okkar þjóðaröryggishagsmuni. Við gerum það best með því að halda merkjum alþjóðahyggjunnar á lofti. Höfundur er framkvæmdarstjóri Ecosophy og fyrrum Alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Smári McCarthy Öryggis- og varnarmál Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar